Patagonia Stealth 25L bakpokinn er hannaður fyrir þá sem vilja hafa allt á hreinu við veiðar og bera búnaðinn þægilega yfir lengri vegalengdir. Hann sameinar gott geymslupláss og vel útfærðar lausnir sem auðvelda skipulag og aðgengi.
Pokinn er úr slitsterku ripstop-efni úr 100% endurunnu pólýester með TPU-húðun sem veitir góða vörn gegn raka og álagi. Hann er búinn festingum fyrir áhöld á axlarólum, innbyggðum segli og fjölmörgum festipunktum sem gera auðvelt að bæta við eða festa búnað eftir þörfum.
Skipulagið er skýrt og hagnýtt. Stórt aðalhólf rúmar helsta búnaðinn, auk þess sem efra aukahólf og framvasi halda smærri hlutum aðgengilegum. Að innan er skilrúm fyrir vökvapoka og festingar sem gera kleift að hengja lykla eða bæta við aukahlutum. Teygjuband að utan hentar vel til að festa búnað eða halda blautum vöðlum aðskildum frá öðru innihaldi.
Fjölbreyttar lausnir fyrir háf eru á pokanum, þar á meðal innbyggður haldari að aftan, hliðar lykkjur og D-hringur fyrir útdraganlegan háf. Á hliðum eru stórir vasar fyrir vatnsbrúsa sem halda vel utan um innihaldið.
Framleiddur í Fair Trade Certified™ verksmiðju með áherslu á ábyrga framleiðslu og sanngjarna vinnu.
- Rúmmál: 25 lítrar
- Þyngd: 1.049 g
- Efni: 100% endurunninn pólýester (ripstop) með TPU-húðun
- Hólf: Aðalhólf, efra hólf og framvasi
- Sérkenni: Segull, festingar fyrir áhöld, festipunktar
- Aukabúnaður: Vatnsbrúsavasar og margir möguleikar til að bera háf
- Framleiðsluland: Víetnam
Fishpond Honcho Reel Case - Hjólataska
Patagonia Take a Stand T. Blue Derhúfa
Costa Lido Veiðigleraugu 580G
Fishpond Dakota 45" stanga- og hjólataska
Costa Diego Veiðigleraugu 580G
Rub Silungaháfur
Costa Jose Pro Veiðigleraugu 580G
Guideline Embrace Tvíhendupakki 12' #7/8
McLean Weigh-Net Small (M112) - Silungaháfur með Vigt
Patagonia Fly Catcher Hat B. Sage Derhúfa 





