Opinel Trekking N°8 Dark Blue er klassískur og áreiðanlegur vasahnífur sem nýtist vel í veiðum og útivist. Hann er léttur og þægilegur í meðförum, en samt nægilega sterkur til að takast á við fjölbreytt verkefni.
Blaðið er úr Sandvik 12C27 stáli sem heldur vel egg og er auðvelt að brýna. Það tryggir hreinan og nákvæman skurð, hvort sem verið er að vinna með fisk eða annað sem fellur til við veiðar.
Handfangið er úr beykiviði með dökkblárri áferð sem gefur hnífnum stílhreint og klassískt útlit. Aftan á handfanginu er leðuról sem auðveldar að festa hnífinn við búnað eða hafa hann við höndina.
Virobloc hringlásinn heldur blaðinu örugglega opnu eða lokuðu og eykur öryggi í notkun. Þetta er einföld og traust lausn sem hefur reynst vel í gegnum tíðina.
- Blaðlengd: 8,5 cm
- Þyngd: 50 g
- Stál: Sandvik 12C27
- Handfang: Beykiviður með dökkblárri áferð
- Læsing: Virobloc hringlás
- Sérkenni: Leðuról til festingar
Guideline Logo Grá Derhúfa
Guideline LPX Nymph 10,8' #3
Loop Stilren Stone Gray Húfa
Fishpond Local Hat - Sandstone/Brown Derhúfa
Semperfli Dry Fly Polyyarn Caddis Magnpakkning
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Svört Derhúfa
Leatherman WINGMAN® PEG 




