Nextcast Línuendar
Nextcast línuendarnir eru hluti af fjölbreyttu og öflugu úrvali hágæða línuenda sem henta einstaklega vel fyrir flugulínur á borð við Jöklu, Sog, Rangá og Myrká. Þeir eru þó jafnframt fullkomlega nothæfir með öðrum skothausum frá öðrum framleiðendum og nýtast í fjölbreyttum aðstæðum.
Allir endarnir, að flotendum undanskildum, eru hannaðir með svokallaðri 2D (Double Density) tækni, þar sem tveimur sökkhraðalögum er raðað saman innan eins línuenda. Þetta tvöfalda sökkmynstur veitir betri stjórn á flugunni í vatninu og gerir veiðimanni kleift að stjórna dýpt og framsetningu með nákvæmni.
Línuendarnir eru keilulaga (tapered) sem tryggir mjúka og áreiðanlega framsetningu. Þeir eru varðir með PU-húð sem eykur endingu og slitþol, jafnvel við erfiðar aðstæður og í köldu vatni. Tilbúnar lykkjur eru á báðum endum. Þeir eru fáanlegir í þremur lengdum og sjö mismunandi sökkhraðaflokkum, frá floti niður í sökkhraða 5/7 (5–7 tommur á sekúndu).
Lengdir og þyngdir:
10 feta (3 m) endar = 5,8 grömm eða 90 grain
12 feta (3,6 m) endar = 6,8 grömm eða 105 grain
15 feta (4,6 m) endar = 8,8 grömm eða 135 grain
Helstu eiginleikar:
- 2D-tækni fyrir betri dýptarstýringu
- Keilulaga hönnun tryggir fínlega og nákvæma framsetningu
- PU-húðun eykur endingu og slitþol
- Sérsniðnir fyrir flugulínurnar Jöklu, Sog, Rangá og Myrká
- Má einnig nota með skothausum annarra framleiðenda
- Fást í 10, 12 og 15 feta lengdum og sjö mismunandi sökkhraðaflokkum
Loop 7X 13' #7
Loop 7X 14' #9
Loop 7X 12,6' #6
Costa Tuna Alley Pro Veiðigleraugu 580G
Vac Rac Stangahaldari með segli
Reiða Öndin - Gjafasett
Patagonia Fly Catcher Fitz I. Green Derhúfa
Reiða Öndin - Snúra
Loon Line Speed - Línubón
Loon UV Knot Sense - Hnútalím
Loon Payetta Paste - Flotáburður
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
Loon Blue Ribbon - Þurrfluguduft
Patagonia Fly Catcher B. Green Derhúfa
Loon Flexistripper Línukarfa
Loon Rigging Foam Holder - Taumageymsla 


