Nautilus er í dag einn fremsti framleiðandi fluguveiðihjóla í heiminum og hefur fyrirtækið sópað til sín verðlaunum á undanförnum árum. Hjólin eru öll framleidd á einum stað í Miami í Bandaríkjunum og þykir hönnunin sérlega framsækin og vönduð.
X er nýjasta hjólið frá Nautilus sem er sannarlega nýstárlegt og virkilega vandað. Nautilus X er hannað með opnum ramma (e. open frame) svo unnt sé að hafa hjólið bæði létt og sterkt. X er eins og önnur hjól frá Nautilus með frábærum bremsubúnaði sem nefnist SCF-X Drag.
Nautilus X fæst í tveimur litum og þremur stærðum: XM, XL og XL Max.
Nautilus X hefur víðast fengið einróma lof og nýverið hafnaði það í öðru sæti af 53 í viðamikilli úttekt sem framkvæmd var af Yellowstone Angler og lesa má HÉR.
Loop ZX Einhendupakki 9' #7
Semperfli Kapok Dry Fly Dubbing Magnpakkning
Stonfo tökuvarar með lími
Loon UV Vöðluviðgerðarefni
SALAR Duke Matte Black ONE
Lazzeri Hnýtingagálgi
Einarsson Svart 7Plus
Fishpond Upstream Tech Veiðivesti (Dömu)
Loop Evotec G5 6/8 
















