Myrká – Fjölenda Flotlína
Myrká er einstaklega fjölhæf lína sem hentar mjög vel á einhendur og switch-stangir þar sem sveigjanleiki, fágun og kraftur þurfa að fara saman. Hún sameinar skothaus og rennilínu í eina samfellda heild, sem gerir hana einstaka í samanburði við hefðbundnar skothausalínur – ekki aðeins hvað varðar köst, heldur einnig stjórn og flæði línunnar í vatni og lofti. Með þessari samþættu hönnun hverfa öll samskeyti milli línuhluta, og veiðimaður fær beinni tengingu við fluguna og meiri stjórn á línunni allan tímann. Myrká er fjölenda (Multi Tip) flotlína og skal ávallt notast með viðeigandi línuenda.
Þrátt fyrir að vera stutt lína nær Myrká að skila ótrúlega fínlegri framsetningu, en býður jafnframt upp á nægilegt afl til að kasta þungum sökkendum og stærri flugum þegar þess þarf. Hún nýtist í mjög fjölbreytta veiði, hvort sem kastað er fyrir lax eða urriða –staðbundinn og sjógenginn. Línan hleður stöngina áreynslulaust og stendur sig sérlega vel í krefjandi aðstæðum.
Notkun, samsetning og stærðir
Myrká er í grunninn flotlína en ætluð til notkunar með 10′ eða 12′ línuendum, ýmist flot eða sökk. Línan virkar ekki án enda – lokakastþyngd fæst með samsetningu skothauss og línuenda.
Viðmið um línuþyngd án línuenda:
• 200 grain – Einhenda #6
• 225 grain – Einhenda #7
• 250 grain – Einhenda #8
• 275 & 300 grain – Léttar Switch-stangir #6–#8
Myrká opnar nýja möguleika í einhenduveiði, þar sem markmiðið er að ná áreynslulausum köstum með hámarks stjórn og beinni tengingu við fluguna – án truflandi samskeyta eða viðnáms.
Helstu eiginleikar:
- Samþættur skothaus og rennilína – engin samskeyti
- Fjölenda (Multi Tip) kerfi fyrir hámarks sveigjanleika
- Mjög fínleg framsetning þrátt fyrir mikil afköst
- Tekur vel við sökkendum og þungum flugum
- Hentar einstaklega vel á einhendur og switch-stangir
- Sambland Scandi/Skagit – kraftur + nákvæmni
- Hæfir öllum kaststílum og kunnáttustigum
- ID merking fyrir skýra auðkenningu
- Notist alltaf með 10′ eða 12′ taum (seldir sér)
- Öflugur kjarni og sterk lykkjusamsetning
Veniard Grey Partridge Neck Natural
Dropper Festingar
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #5
Veniard Peacock Eye Top Natural
Loon Strike Out - Tökuvari
Stonfo Áhaldasnúra
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
Fishpond Ridgeline Tech Pack - Bakpoki
Veniard Cock Pheasant Centre Tails Mixed
Stonfo Áhaldasegull
Veniard Silver Pheasant Body Feathers
Loon Fast Cast Tool - Línuhreinsunartæki
Fishpond Thunderhead Eco Brjóstpoki
Loon Stream Soap - Vistvæn sápa
Loon Small Caddy Smábrúsafesting
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #5
GL Áhaldaspóla
GL Áhaldaspóla
Patagonia Stealth Pack S. Green Bakpoki
Leech ATW1 - Intro - Copper
Loon Payetta Paste - Flotáburður
Morsetto Flytec Hnýtingaþvinga
Veniard Mallard Duck Wing Quills Blue/White Tip
Collectall Ruslakarfa
Veniard Teal Duck Flank Feathers
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Leech ATW6 Black - Intro - Smoke 









