Virkilega vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop ZX einhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Þverá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi fluguveiðipakki nýtist vel í silungsveiði í vötnum þar sem von er á stórum fiskum. Stöngin var upphaflega hönnuð í vatnaveiði en raunin var þó sú að hún nýtist einnig í lax- og sjóbirtingsveiði. Hún er mjög öflug en er þrátt fyrir það skemmtileg í fiski. Stöngin ber þungar línur og stórar flugur. Þessi flugustöng hentar vel í íslenska veðráttu og er heppileg þegar vindstyrkur er mikill.
Loop ZX einhendurnar eru hraðar (e. fast action) og nýtast best þeim sem eru með tiltölulega hraðan kaststíl. Þær henta vel í yfirhandarköst og bera þungar línur og stórar flugur. Stangirnar eru virkilega öflugar og eru kjörnar í stærri fiska og krefjandi aðstæður. Þær eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross SX, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Að auki er sérhver stöng framleidd með 40–45 tonna nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl.
Z stangirnar eru öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Hver stöng er með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.
Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.
Á hjólinu er undirlína og Þverá flotlína. Kaupendur hafa einnig val um að velja aðra línu, hvort heldur flot- eða sökklínu. Þverá er kraftmikil og nákvæm lína með stuttum skothaus sem hleður stöngina auðveldlega og veitir gott jafnvægi og stjórn í kastinu. Hún rennur mjúklega í gegnum lykkjur stangarinnar og leggst létt á vatnsflötinn – jafnvel við krefjandi aðstæður og í vindi.
Línan er með sleipri kápu og tvílita hönnun: gráleitur skothaus og appelsínugul rennilína auðvelda bæði yfirsýn og tímasetningu kasta. Þverá nýtur sín í fjölbreyttum kaststílum og við ólíkar aðstæður, allt frá stilltum morgni í vatni til straumveiði í vindi.
Loop ZX stangarpakkinn er í alla staði vandaður og hentar þeim sem kjósa gæði og áreiðanleika.
Patagonia Fly Catcher M. Khaki Derhúfa
Loon Áhaldasett
Veniard Mallard Duck Wing Quills Blue/White Tip
Einarsson Svart 3Plus
Fishpond Tacky Pescador Leaflet Innlegg
Loon Nano Light UV ljós
Stækkunargler með sogskál
GL Hitamælir
Coghlans Flugnanet
Guideline Experience Mittistaska 6L
Guideline Embrace Tvíhendupakki 14' #9/10
Loop Dry 25L Bakpoki
Guideline Trout Slit Flugubox
Áhaldaspóla
Guideline LPX Tactical 9' #2
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #4
Loop ZT Tvíhendupakki 13,2' #8
Loon Low Tack Swax - Dubbing vax
Guideline Aura Titan 7/8
Loop Fly Trucker Cap Blue Gray Derhúfa
Wapsi Ostrich Mini Plumes
Loon High Tack Swax - Dubbing vax
Taumaklippur
Vise Keflishalda
Water Repellent - Vatnsvörn
Tacky Pescador Leaflet- XL- Dynamic Foam Millispjald
McLean Salmon Weigh Net XXL - Laxaháfur með Innbyggðri Vigt
Echo Lift 9' #7
Leech Hawk - Pro - Yellow
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat W. Blue Derhúfa
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #4 
























