Loop ZX einhendurnar eru hraðar (e. fast action) og nýtast best þeim sem eru með tiltölulega hraðan kaststíl. Þær henta vel í yfirhandarköst og bera þungar línur og stórar flugur. Stangirnar eru virkilega öflugar og eru kjörnar í stærri fiska og krefjandi aðstæður. Þær eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross SX, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Að auki er sérhver stöng framleidd með 40-45 tonna nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl.
Í raun eru Z stangirnar öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Hver stöng er með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum. Í stað þess að hanna alla stangaseríuna eftir fyrirfram ákveðnum ferli, er hver stöng aðlöguð fyrir tiltekinn veiðiskap. Allar stangirnar hafa sín séreinkenni og nýtist hver stöng betur í ákveðnum aðstæðum en aðrar. Til að auðvelda samanburðinn er hér sagt nánar frá hverri og einni þeirra:
Loop ZX 10′ #6 var upphaflega hönnuð í vatnaveiði en raunin er þó sú að hún nýtist einnig í lax- og sjóbirtingsveiði. Stöngin er mjög öflug en er þrátt fyrir það skemmtileg í fiski. Hún ber þungar línur og stórar flugur. Þessi flugustöng hentar vel í íslenska veðráttu og er heppileg þegar vindstyrkur er mikill.
Loop ZX 9,3′ #6 er virkilega öflug flugustöng. Hún nýtist í hverskonar aðstæður enda býður hún upp á fjölþætta notkun. Með stönginni má ná mikilli kastlengd, jafnvel í miklum vindi.
Hún er næm þrátt fyrir mikinn hraða og fer ótrúlega vel með nettum taumum.
Loop ZX 9′ #7 er frábær í sjóbirtingsveiðina. Með henni má ná löngum og nákvæmum köstum. Stöngin býr yfir nægum línuhraða til að kasta stórum flugum og fer létt með sökklínur og sökkenda.
Loop ZX 10′ #8 er öflugasta stöngin í ZX seríunni. Hún er hönnuð til að takast á við mjög krefjandi aðstæður. Þetta er stöng sem nýtist best í stórum fiskum, þá sérstaklega sjóbirtingi og laxi. Stöngin er nægjanlega öflug til að kasta stórum straumflugum og þungum línum.
CND Gravity 13,4' #8/9
Oros Strike Indicators Tökuvarar - Anti Glare
Fishpond Headwaters Terra Derhúfa
Loon Payetta Paste - Flotáburður
Stonfo Áhaldasnúra
Fishpond Ridgeline Tech Pack - Bakpoki
Loon Stream Line - Línuhreinsir
Fishpond Stormshadow Medium Duffel Taska á hjólum
GL Áhaldaspóla
Frödin FITS Túpunál
Af flugum, löxum og mönnum
Stonfo Hair Stacker - Hárjafnari
Fishpond Tacky Pescador Large Flugubox
Loon UV Fluorescing Clear Finish - Lakk
Guideline Embrace Einhendupakki 10,6' #3
Patagonia Broadcaster Hat R. Green Derhúfa
Guideline Fly Fishing Cap K. Pumpkin Derhúfa
Stonfo Þræðari
Patagonia Stealth 25L M Bakpoki - B. Brown
Fishpond Tacky Pescador Leaflet Innlegg
Veniard Peacock Eye Top Natural
Loon Áhaldasett
Loop Logo Húfa Vínrauð
Acryl-flugulakk
Guideline NT11 Salmon 13,9' #9/10
Stonfo Lanyard Hálsfesti
Loop Dry 25L Yellow Bakpoki
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat W. Blue Derhúfa
Guideline Experience Trucker Derhúfa - Khaki/Ivory
Fishpond Burrito Vöðlutaska
Guideline LPX Nymph 10,2' #4 










