Mjög flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Loop ZT sexhluta tvíhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Hofsá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi tvíhendupakki hentar sérlega vel í flest alla laxveiði í meðalstórum og stórum ám. Stöngin fer vel með stærri flugur, ræður við vind og tryggir góðan stöðugleika í köstum – hvort sem aðstæður eru krefjandi eða mildar.
Loop ZT stangirnar byggja á sömu grunnhönnun og Loop Z1, en eru í sex hlutum í stað fjögurra. Þær eru þróaðar fyrir ferðalög og sveigjanlega notkun, fáanlegar í fjölbreyttum lengdum og þyngdum. Þær eru nákvæmar og fisléttar með afbragðs línustjórnun. Eins og aðrar Z1 stangir eru þær meðalhraðar (medium fast action), með djúpri hleðslu og öflugu skafti sem vinnur vel við allar veiðiaðferðir.
ZT stangirnar eru framleiddar úr 40–45 tonna nano graphene koltrefjum með nano resin efni, sem gerir þær bæði sterkari og léttari en Cross S1 forverar þeirra. Þær skila aukinni næmni og kastvegalengd án þess að missa viðbragð. Þær eru búnar fyrsta flokks korkhandföngum, fisléttum hjólasætum og keramikfóðruðum lykkjum úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5, fimmta kynslóð þessa sígilda fluguveiðihjóls. Það er búið lokuðu Power Matrix diskabremsukerfi sem er jafnt öflugt og viðhaldsfrítt. Hjólið er framleitt úr renndu áli, með ryðfríum íhlutum og endurbættum bremsu- og spóluhnöppum sem tryggja gott grip og auðvelda notkun.
Á hjólinu er undirlína og Hofsá flotlína – samfelld hágæðalína hönnuð fyrir íslenskar aðstæður. Hún er örlítið þyngri en hefðbundinn línukvarði gefur til kynna og hleður stöngina auðveldlega. Hún situr hátt á vatninu og leggst mjúklega, sem gerir hana sérlega vel fallna fyrir nákvæma framsetningu í logni, við lága vatnsstöðu eða mikla birtu. Hofsá virkar jafnt með stuttum sem löngum köstum og með öllum gerðum tauma og flugna – hvort sem það eru smáflugur, túpur eða straumflugur. Rennilínan er í skærum appelsínugulum lit sem eykur yfirsýn, en skothausinn í látlausum grænum lit sem truflar síður fisk.
Loop ZT tvíhendupakkinn er hugsaður fyrir veiðifólk sem ferðast mikið og vill treysta á öfluga, fjölhæfa stöng og vandaða línu við allar aðstæður – innanlands sem utan. Frábær kostur fyrir veiðimenn sem gera ríkar kröfur til tækjabúnaðar.
Smith Creek Middle Fork Fly Patch - Flugugeymsla
Við straumana - veiðibók
Tacky Daypack Flugubox
Vac Rac Pro Stangahaldari með sogskálum
Guideline WP Slit Foam Swing Leaf - Flugubox
Loop Logo Húfa Rauð
Frödin Túpuveski – Medium ‘X‘
Loon Stream Line - Línuhreinsir
Guideline Embrace Tvíhendupakki 13' #8/9
Loon Bench Boss - Verkfærageymsla fyrir fluguhnýtara
McLean Weigh-Net Medium (M111) - Silungaháfur með Innbyggðri Vog
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat W. Blue Derhúfa
Hárjafnari Mini
Loop Opti Rapid - Storm Blue
Stonfo Áhaldasnúra
Loop Opti Dryfly - Black
Fishpond Riverkeeper Stafrænn Vatnshitamælir
Loon Reel Lube - Hjólafeiti
Taumaklippur
Loop Z1 Einhendupakki 9' #4 




















