Glæsilegur fluguveiðipakki sem samanstendur af Loop Z1 tvíhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjóli, undirlínu og Hofsá flotlínu eða sambærilegri línu. Vinsamlegast takið fram óskir um aðra línutegund í skilaboðareitnum í körfunni.
Þessi tvíhendupakki er tilvalinn í stærri laxveiðiárnar. Hér er á ferðinni tvíhenda sem getur leyst öll verkefni, enda ræður hún við mikinn vind og krefjandi aðstæður. Hún fer létt með að kasta stórum flugum og vinnur vel niður í skaft.
Loop Z1 tvíhendurnar eru framleiddar í fjölbreyttum útfærslum sem henta mismunandi veiðisvæðum og aðferðum. Þær eru fisléttar, nákvæmar og bjóða upp á framúrskarandi línustjórnun. Líkt og aðrar stangir í Z1-línunni eru þær meðalhraðar (medium fast action) með djúpri hleðslu og öflugu skafti. Hver stöng er útfærð með tiltekinn veiðistíl í huga – ekki sem hluti af staðlaðri seríu.
Z stangirnar eru bæði sterkari og léttari en Cross S1 forverar þeirra, þökk sé nano resin efni og koltrefjum með 40–45 tonna spennuþoli. Þær skila meiri næmni, aukinni kastlengd og sterkari svörun. Allar stangirnar eru smíðaðar með handföngum úr vönduðum korki, léttum hjólasætum og keramikfóðruðum lykkjum úr títaníum – smáatriði sem skipta máli til lengri tíma.
Loop Evotec G5 fylgir með – fimmta kynslóð af þessu trausta fluguveiðihjóli. Hjólið er með lokuðu og vatnsþéttu Power Matrix diskabremsukerfi sem tryggir öruggt viðnám og jafna bremsu við átök. Það er smíðað úr renndu áli með ryðfríum íhlutum og útbúið endurbættum hnöppum sem veita gott grip og nákvæma stjórn.
Á hjólinu er undirlína og Hofsá flotlína – vönduð og vel hönnuð samfelld lína, þróuð sérstaklega með íslenskar laxveiðiár í huga. Línan er örlítið yfir hefðbundnum þyngdarkvarða og hleður stöngina auðveldlega án fyrirhafnar. Hún leggst mjúklega á vatnið og nýtist sérstaklega vel í aðstæðum sem krefjast nákvæmrar framsetningar – t.d. í logni, mikilli birtu eða við lága vatnsstöðu. Hún hentar bæði í stutt og löng köst, með smáflugum, túpum og löngum taumum.
Loop Z1 tvíhendupakkinn er sérvalinn fyrir íslenskar aðstæður – frábær kostur fyrir veiðimenn sem vilja fá samspil mýktar, afls og alvöru hágæða tækja í hverju einasta kasti.
Taumaklippur
Loon Razor 5“ Hnýtingaskæri
Shark Tooth Skurðarteygja M
Echo Lift Einhendupakki 9' #7
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
CND Nordic 12,6' #7/8
CND Gravity 13,4' #8/9
Loop Z1 Einhendupakki 7,9' #3
McLean Salmon Weigh Net 3XL - Laxaháfur með Innbyggðri Vigt
Loon Hydrostop - Vatnsvari
Stonfo Bobbin Elite - Keflishalda
Loon Stream Line - Línuhreinsir
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #2
GL Losunartöng
Loop Logo Húfa Vínrauð
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #2
Stonfo Taumaspóluhaldari
Loop Z1 Einhendupakki 10' #7
Stonfo Lanyard Hálsfesti
Loon Fly Line Cleaner - Línuhreinsiefni
Veniard Cock Pheasant Centre Tails Mixed
Loon Henry's Sinket - Sökkefni á flugur
Loop Z1 Einhendupakki 10' #5 
























