Verulega flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Loop Z1 tvíhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Hofsá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi tvíhendupakki er samsettur til notkunar í fjölbreytta veiði. Stöngin er í meðallengd og hæfir flestum íslenskum ársvæðum. Þessi pakki er í raun öruggt val í hverskonar laxveiði. Stöngin er virkilega skemmtileg notkunar og veitir veiðimanninum góða tilfinningu fyrir agninu og bráðinni. Hún hefur tiltölulega djúpa hleðslu og mikið afl.
Loop Z1 tvíhendurnar eru fáanlegar í fjölbreyttum útfærslum sem henta mismunandi vatnaskilyrðum og veiðiaðferðum. Þær eru nákvæmar, fisléttar og bjóða upp á frábæra línustjórnun. Líkt og aðrar Z1 stangir eru þær meðalhraðar (medium fast action) með djúpri hleðslu og sterkum botni. Hver stöng er hönnuð með ákveðna notkun í huga – ekki sem hluti af fyrirfram stöðluðu sniði.
Z stangirnar eru léttari og sterkari en forveri þeirra, Cross S1, þökk sé nano resin tækni og koltrefjum með 40–45 tonna spennuþoli. Þær veita betri næmni, meiri kastvegalengd og öflugri svörun. Handföng eru úr fyrsta flokks korki, hjólasætið fislétt og lykkjurnar keramikfóðraðar úr títaníum – smíðað til að endast.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5, eitt af traustustu hjólum Loop til þessa. Hjólið er með lokuðu vatnsþéttu diskabremsukerfi (Power Matrix) sem skilar jafnvægi og öflugri hemlun við átök. Það er úr renndu áli og með ryðfríum íhlutum, með endurbættum bremsu- og spóluhnöppum sem veita notandanum góða stjórn og öruggt grip.
Á hjólinu er undirlína og Hofsá flotlína – vönduð og samfelld lína sem þróuð er fyrir íslenskar laxveiðiár. Hún er ögn þyngri en hefðbundinn línukvarði gefur til kynna og hleður stöngina með lítilli fyrirhöfn. Hofsá leggst mjúklega á vatnsflötinn og nýtist einstaklega vel við krefjandi aðstæður, svo sem í logni, við lága vatnsstöðu eða mikla birtu. Hún er hugsuð til notkunar með löngum frammjókkandi taumum og skilar sér vel bæði í stuttum og lengri köstum.
Loop Z1 tvíhendupakkinn er sérvalinn fyrir íslenskar aðstæður – frábært val fyrir veiðimenn sem gera ríkar kröfur um gæði og áreiðanleika.
Guideline Halo EVO 7/9
Umpqua UPG Foam Walkabout WP Large Olive - Flugubox
Guideline Elevation Tvíhendupakki 12‘ #7/8
Fishpond Elkhorn Lumbar Pack Mittistaska - Pebble
Tacky Pescador Leaflet- Large- Dynamic Foam Millispjald
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #3
McLean Sea Trout XXL - Veiðiháfur
Fishpond Tacky Pescador Flugubox XL
Leech gleraugnahulstur (hard)
Guideline Badge Old Gold Derhúfa
Stækkunargler með sogskál
Stonfo Áhaldasnúra
Áhald fyrir hálfhnút
Loon Rigging Foam Holder - Taumageymsla
Guideline LPX Chrome 12,3' #6/7
Loop Opti Strike - Arctic Blue
Guideline Aura Bronze Euro
Fishpond Tacky Pescador Leaflet Innlegg XL
Einarsson Charcoal SOLID 9Plus
Loop Z1 Tvíhendupakki 13' #6
Fishpond San Juan Brjóstpoki
Loop Opti Megaloop - Black
Patagonia Stealth Switch Pack 5L Veiðitaska - B. Brown
Loon Bottoms Up Smábrúsafesting
Loon Nano Light UV ljós
McLean Salmon Weigh Net XXL - Laxaháfur með Innbyggðri Vigt
Loop ZT Tvíhendupakki 13,2' #8 






















