Afar vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop Z1 switch-stöng, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Þverá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi switch-pakki er úthugsaður og nýtist í fjölbreyttan veiðiskap. Stöngin er mjög öflug en á sama tíma nákvæm. Hún er hönnuð í létta laxveiði en er einnig skemmtileg sem silungsveiðistöng. Stöngin veitir notandanum mikla tilfinningu fyrir fiski og fer vel með löngum og grönnum taumum. Þetta er kjörin stöng í smáflugur, gárutúpur eða aðra fínlega veiði.
Loop Z1 switch-stangirnar eru hannaðar sem stuttar og léttar tvíhendur. Þær nýtast bæði í silungs- eða laxveiði, á skemmra sem lengra færi. Þó svo að stangirnar séu uppbyggðar líkt og tvíhendur má einnig kasta þeim með annarri hendi. Stangirnar eru meðalhraðar (e. medium fast action) og skapa óviðjafnanlega upplifun í fiski. Þetta eru stangir sem henta í ár og stöðuvötn en eiginleikar þeirra nýtast þrátt fyrir allt best í straumvatni.
Loop Z1 stangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross S1, þökk sé nýrri nano resin tækni. Að auki er sérhver stöng framleidd með 40–45 tonna nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl. Í raun eru Z stangirnar öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Hver stöng er með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5, fimmta kynslóðin af þessum þekktu fluguveiðihjólum. Þau eru með Power Matrix bremsukerfinu sem Loop hefur lengi notað með góðum árangri. Bremsan er vatnsheld, jafnvæg og áreiðanleg – og veitir veiðimanni traust á öllum tímum. Hjólið er framleitt úr renndu áli með fallegu málmgráu áferð og endurbættum hnapparömmum sem auka styrk og grip við notkun.
Á hjólinu er undirlína og Þverá flotlína. Hún er kraftmikil og nákvæm með fremur stuttum skothaus, sem hleður stöngina auðveldlega. Línunni er afar auðvelt að kasta – jafnvel við krefjandi aðstæður þar sem pláss er takmarkað og vindur blæs á móti. Hún flýtur hátt og hefur mjög sleipa kápu sem rennur mjúklega í gegnum lykkjur stangarinnar. Tvílituð hönnun hjálpar veiðimanni að tímasetja kastið og finna réttan hleðslupunkt. Skothausinn er gráleitur til að trufla síður fisk, en rennilínan appelsínugul og veitir góða yfirsýn – jafnvel í erfiðum birtuskilyrðum.
Loop Z1 switch-pakkinn er einstaklega skemmtilegur og hentar þeim sem kjósa gæði, fjölhæfni og áreiðanleika við íslenskar aðstæður.
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #4
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat W. Blue Derhúfa
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
Guideline Experience Waterproof Zip 21 Bakpoki
Guideline Coastal Trucker Derhúfa
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #4
Echo Lift Einhendupakki 9' #7
Fishpond Headgate Taumaspóluhaldari
Stonfo Áhaldasnúra
Guideline LPX Chrome 9,9' #6
Loop Fly Trucker Cap Khaki Derhúfa
Patagonia Fly Catcher Fitz I. Green Derhúfa
Loon Krókabox / Kónabox
Fishpond Tacky Pescador MagPad Flugubox
Loon Áhaldaspóla
Patagonia Fly Catcher R. Tan Derhúfa
Coghlans Flugnanet
Loon Áhaldasett
Taumaklippur
Guideline Embrace Switch-pakki 11' #7/8 























