Einstaklega vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop Z1 einhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Guideline Presentation+ flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi pakki er kjörinn fyrir þá sem vilja nettar græjur til veiða með púpum og þurrflugum. Stöngin er hárnákvæm og fíngerð, fullkomin í litlar ár og læki. Hún fer sérlega vel með grönnum taumum og smáum flugum. Flugustöngin er meðalhröð (e. medium fast action), hún býr að mikilli nákvæmni og fullkominni línustjórnun. Stöngin hentar á lengra sem skemmra færi, jafnt með yfir- og undirhandarköstum.
Loop Z1 flugustangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross S1, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Þá er hver stöng framleidd með nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl. Z stangirnar eru öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Stangirnar eru með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System” sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt og áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.
Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.
Á hjólinu er undirlína og Guideline Presentation+ flotlína. Þetta er alhliða lína sem var upphaflega hönnuð með nákvæmni og framsetningu að leiðarljósi – sérstaklega fyrir silungsveiði í minni ám og vötnum. Hún nýtur sín hvað best á stuttum til meðal löngum köstum, þar sem takmarkað pláss er fyrir bakköst og næm stjórn á flugunni skiptir öllu.
Skothausinn er þjappaður með stuttri afturmjókkun og miðkafla sem veitir línunni hraða, en stór hluti þyngdarinnar liggur aftarlega og hentar því einstaklega vel fyrir veltiköst. Framhlutinn tryggir mjúka og nákvæma framsetningu – jafnvel með löngum taumum. Lægri línuþyngdir eru frábærar í þurrflugur, en #5 og #6 duga vel til að kasta púpum og straumflugum þegar þörf krefur.
Loop Z1 stangarpakkinn er sannarlega vandaður og hentar öllum þeim sem kjósa gæði og áreiðanleika.
Loop Z1 Switch-pakki 11,6' #7
Guideline LPX Chrome Switch-pakki 11,7' #8/9
Loon Graffitolin Ferrule Vax - Samskeytavax
Tacky Pescador MagPad - Small - Smoke Grey - Flugubox
Dropper Festingar
Loop Opti Rapid - Arctic Blue
Fulling Mill Pocket Flugubox - Blue
Loon Tip Toppers Tökuvarar Small
Dubbing tól með klemmu
360 Dubbing tól
Loop Opti Rapid - Storm Blue
Guideline GL Mesh Trucker V. Khaki Derhúfa
Loop 7X 13' #7
Tacky Pescador Leaflet- XL- Dynamic Foam Millispjald
Losunartöng
Guideline Mayfly Suede Derhúfa - DK Brown
Loop ZT Tvíhendupakki 13,2' #8
Guideline WP Double Side Slit Foam - Flugubox
Patagonia Guidewater Mittistaska - B. Green
Taumaklippur
Fishpond Arrowhead Áhaldagormur Svartur
Guideline Double Side Stillwater Flugubox
Fishpond Headwaters Terra Derhúfa
Guideline Stream Thermometer - Vatnshitamælir
Loon Fast Cast Tool - Línuhreinsunartæki
Stonfo Taumaspóluhaldari
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
Stonfo Hnýtingakambur
Stonfo Fly Patch - Flugupaddi
Loop Opti Speedrunner - Aurora Turquoise
Bobtec 1 - Keflishalda
Patagonia Stealth Switch Pack 3L Veiðitaska - G. Green
Leech ATW Kidz Black - Veiðigleraugu fyrir börn
Guideline Chrome Trucker Derhúfa
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #3 




















