Einstaklega vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop Z1 einhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Þverá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Þessi fluguveiðipakki er frábær í lax og sjóbirting og hentar sérlega vel í meðalstórar ár. Stöngin er virkilega öflug og nákvæm, í raun lengri útgáfan af 9,6 feta stönginni. Með henni fæst frábær línustjórnun og mikið afl niður í skaft. Stöngin hleðst tiltölulega djúpt og með henni er unnt að ná mikilli kastvegalengd. Þetta er öflug stöng í íslenskar aðstæður og tæklar hún krefjandi aðstæður með prýði. Hún er meðalhröð (e. medium fast action) og býr að fullkominni línustjórnun. Stöngin hentar á lengra sem skemmra færi, jafnt með yfir- og undirhandarköstum.
Loop Z1 flugustangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross S1, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Þá er hver stöng framleidd með nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl. Z stangirnar eru öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Stangirnar eru með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.
Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.
Á hjólinu er undirlína og Þverá flotlína. Kaupendur hafa einnig val um að velja aðra línu, hvort heldur flot- eða sökklínu. Þverá er kraftmikil og nákvæm lína með stuttum skothaus sem hleður stöngina auðveldlega og veitir gott jafnvægi í köstunum. Hún rennur mjúklega í gegnum lykkjur stangarinnar, flýtur hátt og leggst létt á vatnið.
Línan er með sleipri kápu sem auðveldar stjórn og lagfæringar á straumvatni. Tvílita hönnunin hjálpar veiðimanni að finna hleðslupunktinn og stjórna kasttímasetningu af nákvæmni. Gráleitur skothaus og appelsínugul rennilína veita bæði næði og yfirsýn – jafnvel við erfiðar birtuaðstæður.
Loop Z1 stangarpakkinn er í alla staði vandaður og hentar þeim sem kjósa gæði og áreiðanleika.
Tacky Pescador Large - Dynamic Foam - Smoke Grey Flugubox
Fulling Mill Guide Flugubox - Blue
Loon Rigging Foam Holder - Taumageymsla
Loon Easy Dry - Þurrfluguefni
Stækkunargler með sogskál
Stonfo Bobbin Elite - Keflishalda
Guideline WP Slit Foam Swing Leaf - Flugubox
Guideline The Camper Dark Grey Derhúfa
Fishpond Arrowhead Áhaldagormur Svartur
Fishpond Canyon Creek Chest Pack - Brjóstpoki
Smith Creek Taumaspóluhaldari - Burnt Orange
Leech ATW1 - Intro - Yellow
Loop ZT 13,2' #8
Stonfo Fluguhnýtingasett
Loon Classic Mitten - Skæratöng
Guideline Logo Grá Derhúfa
Sumo Stangahaldarar með Sogskálum
360 Dubbing tól
Gudeline Curved Forceps Losunartöng
Guideline Badge Old Gold Derhúfa
Loop Opti Strike - Black
Loop ZX Einhendupakki 10' #8 

























