Einstaklega vandaður fluguveiðipakki sem inniheldur Loop Z1 einhendu, Loop Evotec G5 fluguveiðihjól, undirlínu og Þverá flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Fluguveiðipakkinn er hannaður í stærri silungsveiðiár og stöðuvötn. Stöngin býður upp á einstaka línustjórnun og kastar púpum jafnt sem straumflugum. Hún ræður við langa og granna tauma og nýtist m.a. vel í andstreymisveiði. Með henni má eiga við stóra fiska á agnarsmáa króka. Flugustöngin er meðalhröð (e. medium fast action) og hentar á lengra sem skemmra færi, jafnt með yfir- og undirhandarköstum.
Loop Z1 flugustangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross S1, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Þá er hver stöng framleidd með nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl. Z stangirnar eru öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Stangirnar eru með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Stönginni fylgir Loop Evotec G5 sem er fimmta kynslóðin af þeim frábæru fluguveiðihjólum. Þau eru þekkt fyrir stílhreint útlit og einstök gæði. Evotec G5 er með „Power Matrix Drag System“ sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrirfinnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Bremsan tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.
Hjólið er framleitt úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þess er virkilega fallegt og fær málmgrár liturinn að njóta sín. Á því eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.
Á hjólinu er undirlína og Þverá flotlína. Kaupendur hafa einnig val um að velja aðra línu, hvort heldur flot- eða sökklínu. Þverá er kraftmikil og nákvæm lína með fremur stuttum skothaus (8,4–9,3 m eftir línuþyngd), hönnuð með fjölbreytt íslensk veiðisvæði í huga. Hún hleður stöngina auðveldlega og virkar vel bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Hún flýtur hátt, rennur mjúklega í gegnum lykkjur stangarinnar og leggst mjúklega á vatnið – jafnvel í vindi eða þröngu rými.
Tvílituð hönnun auðveldar tímasetningu og hjálpar veiðimanni að finna réttan hleðslupunkt. Gráleitur skothaus truflar síður fiskinn og appelsínugula rennilínan gefur góða yfirsýn við allar birtuaðstæður. Þverá hentar jafnt fyrir veltiköst sem hefðbundin yfirhandarköst – hvort sem veitt er í straumvatni með púpum, í vatni með straumflugu eða á lax með gárutúpu.
Loop Z1 stangarpakkinn er sannarlega vandaður og hentar öllum þeim sem kjósa gæði og áreiðanleika.
Stonfo áhald fyrir hálfhnútinn
Veiðikortið 2026
Reiða Öndin - Sarpur
Fifty Places to Fly Fish
Stonfo Taumaklippur
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Loon Krókabox / Kónabox
Hnýtingafótstykki
Veniard Cock Pheasant Centre Tails Mixed
Reiða Öndin - Sarpur
C&F Hnýtingagálgi
Guideline Elevation Einhendupakki 9,9‘ #7
Echo Lift Einhendupakki 8' #4
Loon Bench UV ljós
Loon Áhaldasett
Zap-A-Gap Lím með bursta
Krinkle Mirror Flash
GL Losunartöng
Loon Fly Spritz 2 - Þurrfluguúði
Loon Strike Out - Tökuvari
Selá í Vopnafirði
Loon Stream Soap - Vistvæn sápa
Veniard Ripple Flash
Veniard Peacock Eye Top Natural
Loon Top Ride - Þurrfluguduft
Loop Z1 12,4' #7
Loop Z1 Einhendupakki 9,6' #7
Loop ZX Einhendupakki 10' #8
Loop ZX Einhendupakki 10' #6
Loon Blue Ribbon - Þurrfluguduft
Stonfo Áhaldasnúra
Leech ATW1 - Intro - Copper
Tacky Daypack Flugubox
Stonfo Lanyard Hálsfesti
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #5
Loon Stream Line - Línuhreinsir
Norðurá - enn fegurst áa
Loon Bio Glow - Tökuvari sem lýsir í myrkri
Reiða Öndin - Snúra
Loon Áhaldaspóla 



















