Loop Z1 tvíhendurnar eru fáanlegar í fjölbreyttu úrvali sem henta við ólíkar aðstæður og veiðisvæði. Stangirnar eru einkar nákvæmar, fisléttar og veita afbragðs línustjórnun. Líkt og aðrar Z1 stangir eru þær meðalhraðar (e. medium fast action) með djúpri hleðslu og ótrúlegu afli. Í stað þess að hanna alla stangaseríuna eftir fyrirfram ákveðnum ferli, er hver stöng aðlöguð fyrir tiltekinn veiðiskap.
Loop Z stangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra, þökk sé nýrri nano resin tækni. Þær eru um leið öflugri en Cross S1 stangirnar og ná enn meiri kastvegalengd. Sérhver stöng er framleidd með 40-45 tonna nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl. Í raun eru Z stangirnar öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Hver stöng er með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
CND Gravity Voyager 12,7' #7/8 6pc
Loon Razor 5“ Hnýtingaskæri
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #7
Costa Irie Gold Veiðigleraugu 580G
Guideline NT11 Salmon 13,9' #8/9
Morsetto Flylab Lever Hnýtingaþvinga
Loop Z1 Tvíhendupakki 14' #9
Morsetto Flytec Hnýtingaþvinga
Pheasant Tail Fjaðrir
Guideline Embrace Switch-pakki 11' #7/8
Echo Lift Einhendupakki 9' #8
Loop 7X 10' #7
Loon High Tack Swax - Dubbing vax
Loop ZT 12,2' #6 











