Loop Z1 stangirnar eru umtalsvert léttari og sterkari en forveri þeirra Cross S1, þökk sé nýrri nano resin tækni sem er umtalsvert betri en áður. Að auki er sérhver stöng framleidd með 40-45 tonna nano graphene koltrefjum sem tryggir góða næmni, en um leið mikið afl. Í raun eru Z stangirnar öflugustu hringlaga stangir sem Loop hefur nokkru sinni framleitt. Hver stöng er með þægilegt handfang sem framleitt er úr korki í hæsta gæðastuðli, sérhannað fislétt hjólasæti og keramikfóðraðar lykkjur úr títaníum.
Í stað þess að hanna alla stangaseríuna eftir fyrirfram ákveðnum ferli, er hver stöng aðlöguð fyrir tiltekinn veiðiskap. Loop Z1 einhendurnar eru meðalhraðar (e. medium fast action) og nýtast við fjölbreyttar aðstæður. Þær bjóða upp á köst á löngu sem stuttu færi, jafnt með yfir- og undirhandarköstum. Þær búa að mikilli nákvæmni og fullkominni línustjórnun. Allar stangirnar hafa sín séreinkenni og nýtist hver stöng betur í ákveðnum aðstæðum en aðrar. Til að auðvelda samanburðinn er hér nánari útlistun á hverri og einni þeirra:
Loop Z1 7,9′ #3 er hönnuð fyrir veiðar með púpum og þurrflugum. Stöngin er hárnákvæm og fíngerð, fullkomin í litlar ár og læki. Þetta er flugustöng sem fer vel með grönnum taumum og smáum flugum.
Loop Z1 9′ #4 er gerð fyrir veiði í meðalstórum ám og stöðuvötnum. Stöngin er ákjósanleg í púpu- og þurrfluguveiði. Hún er einstaklega nákvæm og fer sérlega vel með granna tauma og smáar flugur. Þetta er einhenda sem veitir mikla tilfinningu fyrir bráðinni og er þess vegna virkilega næm.
Loop Z1 9′ #5 er sannarlega hágæða silungsveiðistöng. Hún nýtist í fjölbreyttan veiðiskap, hvort heldur í litlum ám eða í vatnaveiði. Hún fer vel með smáum flugum eins og púpum og þurrflugum en ræður jafnframt við nettari straumflugur. Stöngin býr að miklu afli og er virkilega nákvæm, sem kemur sér vel við viðkvæmar aðstæður.
Loop Z1 10′ #5 er stöng sem hönnuð er í vatnaveiði og stærri silungsveiðiár. Hún býður upp á einstaka línustjórnun og kastar púpum jafnt sem straumflugum. Stöngin ræður við langa og granna tauma. Með henni má eiga við stóra fiska á agnarsmáa króka.
Loop Z1 9,6′ #7 er frábær stöng í lax og sjóbirting. Hún hentar í litlar og meðalstórar ár.
Þetta er stöng sem er virkilega öflug og nákvæm, kjörin í hverskonar stórfiskaleik. Hún ræður auðveldlega við stærri flugur og langa tauma, en nýtist ekki síður í smáflugur og gárutúpur.
Loop Z1 10′ #7 er geggjuð flugustöng í lax og sjóbirting. Hún er í raun lengri útgáfan af 9,6 feta stönginni. Með henni fæst frábær línustjórnun og mikið afl niður í skaft. Stöngin hleðst tiltölulega djúpt og með henni er unnt að ná mikilli kastvegalengd. Þetta er frábær stöng í íslenskar aðstæður og tæklar hún krefjandi aðstæður með prýði.
Fishpond Tacky Pescador Leaflet Innlegg
Loop Fly Trucker Cap Burnt Russet Derhúfa
Patagonia Fly Catcher Hat C. Brown Derhúfa
Hatch Finatic 12+
Guideline Badge Trucker Cap Forest Derhúfa
Patagonia Fly Catcher Hat B. Sage Derhúfa
Guideline Embrace Einhendupakki 9' #7
Loon Low Tack Swax - Dubbing vax
Patagonia Take a Stand Trucker Hat S. Blue Derhúfa
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat W. Blue Derhúfa
Loop Trak Einhendupakki 9,6′ #7
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Hat G. Green Derhúfa
Loop Opti Speedrunner - Storm Blue
Guideline Mayfly Suede Derhúfa - DK Brown
Guideline LPX Tactical 9' #3
Loop Opti Rapid - Black
Loop Opti Dry Fly - Twilight Violet
Vision Magnetic Releaser - Háfasegull
Stonfo tökuvarar með splitti
Plaströr fyrir microtúpur
Loon Stream Soap - Vistvæn sápa
Guideline WP Double Side Slit Foam - Flugubox
Loop Logo Dad Cap Burnt Russet Derhúfa
Tacky Pescador Leaflet- Large- Dynamic Foam Millispjald
Stonfo Hair Stacker - Hárjafnari
Dropper Festingar
Guideline The Snake Derhúfa - Caramel
Loop Fly Trucker Cap River Green Derhúfa
Guideline Experience Waterproof Zip 21 Bakpoki
Acryl-flugulakk
Loon Bio Glow - Tökuvari sem lýsir í myrkri
Reiða Öndin - Stuðningssarpur 












