Loop Trak einhendupakkinn í línuþyngd sex er öflugur og fjölhæfur fluguveiðipakki fyrir veiðimenn sem vilja aðeins meiri burð en léttari silungspakkar bjóða upp á. Í pakkanum er Loop Trak 9′ #6 flugustöng, Loop Q fluguhjól og Þverá flotlína. Þetta er góð samsetning fyrir ár og vötn, sérstaklega þegar aðstæður eru breytilegar og þörf er á meiri krafti, lengri köstum eða stærri flugum.
Loop Trak 9′ #6 er öflug einhenda sem ræður vel við fjölbreyttar aðferðir. Hún hentar þegar veitt er bæði í yfirborðinu og undir því, hvort sem notaðar eru þurrflugur, púpur eða hefðbundnar straumflugur. Stöngin er meðalhröð, auðveld í notkun og hefur meiri burð en léttari stangirnar í Trak línunni.
Þessi stöng gefur veiðimanni örugga tilfinningu þegar kasta þarf lengra, ráða við vind eða nota þyngri uppsetningar. Hún hefur góða orku í neðri hlutanum, sem hjálpar til við að lyfta línu og byggja upp kraft í kastinu. Það skilar sér í góðri stjórn og öruggari framsetningu þegar þarf að ná yfir meira vatn.
Með stönginni fylgir Loop Q 6/8, létt og traust fluguhjól fyrir einhendur í línuþyngd #6–8. Hjólið er framleitt úr slitsterku áli, með stórri V-laga spólu sem tryggir hraða línuupptöku og minnkar línuminni. Innbyggð og innsigluð bremsa skilar mjúkri og stöðugri mótstöðu, og einfalt skrúfukerfi við spóluskipti tryggir að engir lausir hlutir tapist við árbakkann.
Þverá flotlínan fullkomnar pakkann. Hún er hönnuð með íslensk veiðisvæði í huga og er með fremur stuttan skothaus sem hleður stöngina auðveldlega. Línunni er einfalt að kasta, jafnvel þegar pláss er takmarkað eða vindur gerir vart við sig. Hún flýtur hátt, rennur vel í gegnum lykkjurnar og tvílituð hönnunin hjálpar veiðimanni að finna réttan hleðslupunkt í kastinu.
Loop Trak Einhendupakki 9′ #6 er góður kostur fyrir veiðimenn sem vilja öflugri einhendupakka fyrir fjölbreytta veiði. Hann hentar vel í silungsveiði þar sem aðstæður geta breyst hratt, en einnig þegar þörf er á meiri yfirferð, þyngri flugum eða öruggari stjórn í vindi.
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #6
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #4
Loon Line Speed - Línubón
Taumaklippur
Fishpond River Bank Backpack Duskwood - Bakpoki
Fishpond Tacky Pescador MagPad Flugubox
Þræðari Elite 1,4 mm
Loon Low Tack Swax - Dubbing vax
Loop Logo Dad Cap Dark Navy Derhúfa
Áhaldaspóla
Lykkjunál
Fishpond Blizzard Kælitaska
Bodkin - Nál með krók
Patagonia Fly Catcher Fitz I. Green Derhúfa
Loop Logo Húfa Svört
GL Áhaldaspóla
Tengi á þvingu - Joint Block
Patagonia Fly Catcher Hat W. Stone Derhúfa
Guideline Badge Old Gold Derhúfa
Loon Bite Ease - Flugnabitsáburður
Fishpond Thunderhead Eco Shadowcast Camo – Bakpoki
Leech ATW6 Red - Intro - Copper
Stonfo Lanyard Hálsfesti
Patagonia Broadcaster Hat W. Stone Derhúfa
Stonfo tökuvarar með lími
Pinnasett í þvingu fyrir túpur 




















