Loop Trak 9′ #7

> Fjölhæf á frábæru verði
> Hentar vel fyrir sjóbirting og lax
> Nákvæmni og næmni
> Meðalhröð stöng með mikið afl

49.900kr.

Á lager

Loop Trak 9′ #7 er öflug einhenda fyrir fjölbreyttan veiðiskap í ám og vötnum. Hún hentar vel í lax- og sjóbirtingsveiði, en má einnig nýta í staðbundinn urriða. Stöngin fer létt með stærri flugur, löng köst og aðstæður þar sem vindur blæs hraustlega á móti.

Trak línan frá Loop er hönnuð með áherslu á góða frammistöðu, jafnvægi og notendavæna virkni á hagstæðu verði. Stangirnar eru auðveldar í notkun, en hafa samt það afl og þá nákvæmni sem þarf þegar veitt er við breytilegar og stundum krefjandi aðstæður.

Loop Trak 9′ #7 ræður vel þyngri línur en fer þó einna best með framþungri flotlínu. Hún heldur mjúkri og jafnri tilfinningu í kastinu og er unnt að ná fram fremur þröngum línubug. Stöngin er meðalhröð og flytur orkuna vel í gegnum kastið. Það gefur góða blöndu af krafti og nákvæmni, þannig að auðvelt er að kasta yfir mismunandi svæði og leggja fluguna þar sem hún á að lenda.

Stöngin er úr koltrefjum og er búin vönduðu AAA korkhandfangi, góðu hjólasæti með koltrefjainnleggi og ryðfríum lykkjum sem veita lágmarks mótstöðu. Loop Trak 9′ #7 er frábær kostur fyrir þá sem vilja kraftmikla og skemmtilega einhendu fyrir stærri fiska og fjölbreyttar aðstæður.