Nýja Midnight Sun skyrtan frá Loop er framleidd úr burstuðu flannelli og Tencel en bómull er notuð á álgassvæði til að auka endingu. Skyrtan er stílhrein, slitsterk og þægileg, bæði í veiðina og til hversdagsnota. Skyrtan hentar best utandyra yfir sumarmánuðina, þegar hlýtt er í veðri.
Framan á skyrtunni er rúmgóður brjóstvasi sem unnt er að loka með tölu. Kraginn er sömuleiðis með hnappalokun til að halda honum á sínum stað. Allar tölur eru festar kyrfilega og munu endast líftíma skyrtunnar. Midnight Sun veiðiskyrtan er framleidd úr vottaðri lífrænni bómull auk annarra hágæða efna og er hún ofin í einni af elstu flannelverskmiðju Portúgals. Skyrtan er fáanleg í stærðum XS-3XL.
Umpqua UPG Foam Walkabout WP Large Olive - Flugubox
Stonfo Áhaldasegull
Nám REN+ 9' #8
Áhaldaspóla
Loop 7X 9,6' #6
Monomaster Taumagleypir
Echo Lift 9' #8
Echo Base 2/3 





