Hágæða PrimaLoft jakki frá Loop sem er hluti af nýrri kvenfatalínu fyrirtækisins. Leipik er frábær flík sem nota má innundir vöðlujakkann, einan og sér eða í hverskonar útivist. Jakkinn er einstaklega léttur en með háa varmaleiðni, hann er tekinn saman í mitti og hannaður til að falla vel að notandanum.
Loop hefur framleidd Leipik-jakka fyrir karlmenn um nokkurt skeið en hafa nú sett fram nýja línu fyrir veiðikonur. Kvenjakkinn heldur betur varma en allir aðrir jakkar Loop miðað við þyngd. 80 gramma Primaloft® einangrunin hefur léttleika og varma dúns, en varmaleiðnin helst 100% þrátt fyrir að jakkinn blotni. Endingargóð nælonfilman, sem er bæði vatnsheld og vindheld, er einangrandi gegn vindi, regni og snjó.
Leipik-jakkinn er ögn léttari en Onka-jakkinn. Hann er gott val sem miðlag í kuldafatnaði eða sem yfirhöfn á svölum vor- og sumardögum. Hann er ótrúlega léttur og honum má hnoða saman í eigin vasa þannig að afar lítið fer fyrir honum. Hann er þægileg viðbót í allar ævintýraferðir og getur oft komið sér vel.