Leech H4X Yellow tilheyra Performance-línunni frá Leech og eru sérstaklega hönnuð fyrir veiðimenn sem takast á við breytileg veðurskilyrði og mismunandi birtu yfir daginn. Þessi gleraugu eru með pólaríseraðri PC-linsu sem er ekki aðeins höggheld og létt – heldur einnig ljósnæm, jhusem þýðir að hún dekkist eða lýsist eftir því sem birtustig breytist.
Linsan er koparlituð með gulum undirtóni, sem hjálpar til við að auka skerpu og dýptarskyn og verndar augun gegn ofálagi yfir langan tíma. Þetta gerir þau að frábærum dagsgleraugum fyrir bæði bjart og skýjað veður. Umgjörðin eru létt og meðfærileg og veitir góð þægindi við daglangar veiðiferðir. Gleraugun eru að sjálfsögðu 100% pólaríseruð og veita UV400 vörn, sem tryggir hámarks vernd gegn skaðlegum útfjólubláum geislum.
Helstu eiginleikar:
- Performance-lína: hönnuð fyrir veiði við breytileg ljós- og veðurskilyrði
- Pólaríseruð PC-linsa – björt, skýr og höggheld
- Ljósnæm (photochromic) linsa – aðlagar birtu sjálfkrafa
- Koparlitaður tónn með gulum undirtóni – bætir skerpu og dregur úr augnþreytu
- 100% UV400 vörn gegn útfjólubláum geislum
- Létt og meðfærileg hönnun – þægileg fyrir langa notkun
Frödin Crooked Hnýtingaskæri
Stonfo Áhaldasnúra
McLean Sea Trout XXL - Veiðiháfur
Stonfo Lanyard Hálsfesti
Semperfli Dry Fly Polyyarn Caddis Magnpakkning
Griffin Hnýtingagálgi
Fishpond Nomad Canyon Silungaháfur
Bodkin - Nál með krók
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #6
Frödin Tungsten Hnýtingaskæri
Leech ATW3 - Intro - Yellow 







