Laxá Mittisvöðlupakki II hentar vel þegar léttleiki, hreyfigeta og þægindi skipta máli. Laxá mittisvöðlurnar eru framleiddar úr slitsterku þriggja laga nælonefni sem veitir góða vatnsvörn og hrindir frá sér óhreinindum. Þær eru góður kostur á hlýrri dögum, í grynnra vatni eða þegar brjóstvöðlur eru einfaldlega óþarfar.
Sniðið er hannað þannig að vöðlurnar sitji vel á notandanum án þess að hamla hreyfingum. Mittið er teygjanlegt og beltið stillanlegt, sem gerir auðvelt að laga þær að líkama og undirfatnaði. Að framan eru tveir vasar með vatnsheldum rennilásum fyrir smáhluti og veiðidót. Á beltinu er D-lykkja fyrir taumaklippur, losunartöng eða annan aukabúnað.
Rennd buxnaklauf eykur notagildi og gerir vöðlurnar þægilegri yfir daginn. Sokkarnir og sandhlífarnar eru úr sterku neoprene efni sem þolir vel notkun. Sandhlífarnar falla vel yfir vöðluskó og hjálpa til við að halda sandi og smásteinum frá.
Í pakkanum er val á milli tveggja ólíkra vöðluskóa. Alta NGx Vibram vöðluskórnir frá Guideline eru sterkir og stöðugir skór með Vibram® Idrogrip gúmmísóla sem gefur gott grip á blautu og sleipu undirlagi. Styrktur yfirhluti, stífur miðsóli og góð vörn við tá og hæl gera þá trausta í grófu landslagi.
Chrome Lite vöðluskórnir frá Korkers eru léttari og liprari, með sportlegu sniði og BOA® vírakerfi sem gerir þá fljótlega og þægilega í notkun. Kling-On Rock™ sóli veitir gott grip á fjölbreyttu undirlagi og innra frárennsliskerfi losar vatn hratt úr skónum. Þeir henta vel þegar gengið er mikið og áherslan er á léttleika og hreyfigetu.




































