Í Veiði með Árna Bald
Árni Baldursson er lifandi goðsögn í íslenskri veiðisögu – og ekki aðeins hér heima, heldur um allan heim. Hann hefur elt lax og sjóbirting heimshorna á milli – heimsótt lönd á borð við Rússland, Argentínu, Skotland, Noreg, Grænland og Alaska – og lent í ótrúlegum ævintýrum við ár sem flestir geta aðeins dreymt um.
Um árabil var Árni stærsti veiðileyfasali landsins og áhrif hans á veiðiheiminn eru óumdeilanleg. Í þessari bók stígur hann í fyrsta sinn fram á prenti og deilir sögum sínum á sinn einstaka hátt. Hér nýtur rödd Árna sín til fulls – hlý, skýr og litríkt frásögn sem dregur lesandann beint inn í andrúmsloft veiðihússins. Það er eins og þú sitjir með honum við eldinn, með kaffibolla í hönd, og hlustir á einar af þeim margfrægu sögum sem hafa fylgt honum um ár og áratugi.
Guideline NT11 Switch-stöng 11,6' #7/8 - 6 pcs
Hackle Guard áhald
One80 Höfuðljós
Loon Rouge Skæratöng
Tengi á þvingu - Joint Block
Loop Z1 Einhendupakki 9' #4
Loon Snake River Mud - Sökkefni 



