ULS 2.0 frá Guideline eru í flokki flugustanga sem kalla má Ultra Light Scandi. Stangirnar eru einstaklega fjölhæfar og nýtast þess vegna bæði í lax og silungsveiði. Þær eru tilvaldar í smærri og meðalstórar ár, sem og vatnaveiði. Léttari stangirnar má auðveldlega nota sem einhendu, en þeim má öllum kasta líkt og tvíhendu.
Stangirnar eru meðalhraðar og henta hverskonar veiðimönnum, óháð reynslu og kunnáttu. Þær ráða við flotlínur sem sökklínur, ólíka kaststíla og fjölbreyttar aðstæður. Stangirnar eru fyrirferðarlitlar og eru í fjórum hlutum.
- Nýtt stangarefni með spíralmynsti
- Sérútbúið svart hjólasæti
- Endurhannað korkhandfang
- Lykkjur sem draga úr líkum á flækjum
- Gráblá mött áferð með samsvarandi vafningum
- Stangarpoki og hólkur fylgir
Tacky Pescador XL - Dynamic Foam - Smoke Grey Flugubox
Leech ATW6 Black - Intro - Smoke
Frödin Túpuveski – Medium ‘X‘
Guideline Coastal Trucker Derhúfa
Komdu að veiða
Veniard Grey Goose Herl
Costa Mainsail XL Veiðigleraugu 580G
Loop 7X 11,6' #7 










