LPX Chrome flugustangirnar eru hannaðar og framleiddar með glænýrri virkni frá Guideline. Þær eru með ¾ djúpri hleðslu og afl sem nýtist snemma í kastinu án þess að hraða stanganna sé fórnað. Þær eru léttleikandi, búa að miklum stöðugleika og með viðbragðsflýti sem tengir notandann við köstin á alveg nýjan hátt. LPX Chrome eru kraftmiklar stangir sem hannaðar eru til veiða í ám þar sem bráðin er urriði, lax eða sjóbirtingur. Þær eru af miklum gæðum og búa að mörgum kostum sem sjaldnast sjást í stöngum á þessu verðbili.
Leyndarmálið á bak við frábrugðna virkni stanganna er ný tækni frá Guideline sem nefnd er C.A.P M4.0™. Um er að ræða háþróaða koltrefjauppsetningu sem skapar einstaka sveigju stanganna. Þeim er best lýst sem framsæknum miðlungshröðum (e. Medium Fast) stöngum með hraðri endurheimt (e. Fast Recovery). Toppurinn er afar stöðugur og nær að framkalla þröngan línubug, auk þess sem hann er nægjanlega öflugur til lyfta þungum sökklínum. Meðan á flugukastinu stendur tengist veiðimaðurinn neðri hluta stangarinnar sem skilar ótrúlegum áhrifum þegar stöngin er stöðvuð í fram- og afturkastinu. Þetta gerir það að verkum að unnt er að ná löngum köstum með afar litlu afli. Hliðarstöðugleiki LPX Chrome gerir það að verkum að flugulínan fylgir stönginni einkar vel þegar henni er sveiflað og snúið í kastinu. Þessir eiginleikar leiða af sér nákvæmari fluguköst, aukinn línuhraða og betri línubug. Þetta er sannarlega ný virkni sem markar ákveðin þáttaskil til framtíðar hjá Guideline.
Hjólasæti LPX Chrome flugustanganna er sérhannað og er korkurinn í handfanginu fyrsta flokks. Til að tryggja langa endingu er hjólasætið búið sérstökum gúmmí-styrkingum sem munu standa tímans tönn. Stangirnar eru 9,9 fet að lengd og eru smíðaðar til að bera stórar flugur þegar veiða á stóra fiska. Stangirnar eru gefnar upp fyrir tiltekna línuþyngd sem er á réttum kvarða og því þarf ekki að yfirhlaða þær með þyngri línu. Guideline mælir með nokkrum gerðum af línum saman með þessum stöngum en þær eru Compact 3D+, 4D Compact Multi Tip, ULS og Bullet 2.0.
Ítarupplýsingar
- Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
- Miðlungshröð með uppbyggingu sem hraðar endurheimt.
- Fjölhæf stöng sem ræður við allar línugerðir.
- Ofurléttar með lágri sveifluþyngd sem gerir þér kleift að veiða lengi án þess að þreytast.
- Blágrá gljáandi áferð með samsvarandi vöf.
- Hágæða korkur með sérstakri styrkingu.
- Rafhúðað hjólasæti með einstöku álagsþoli.
- Léttar og tæringarþolnar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
- Efri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
- Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.
C.A.P M4.0 tæknin
C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðuleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0™ er kvoðan eða plastefnin (e. Resin) sem notuð er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.
Frödin Crooked Hnýtingaskæri
Áhaldaspóla
Semperfli Dry Fly Polyyarn Caddis Magnpakkning
Umpqua UPG Foam Walkabout WP Large Olive - Flugubox
One80 Rafhlaða
Loon Fly Spritz 2 - Þurrfluguúði
Fishpond Tacky Pescador Leaflet Innlegg
Fishpond Burrito Vöðlutaska
Loop Trak Tvíhendupakki 13′ #7
Smáhultstur fyrir varasalva
Loop 7X 9' #5
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Guideline Coastal Trucker Derhúfa
GL Clipper Taumaklippur
Semperfli Ice Dubbing Magnpakkning
Loon Áhaldasett
CND Gravity 16' #11
Stonfo Stangarhaldari með segli
Tacky Pescador - Small - Burnt Orange - Flugubox
Comfort 165N Sjálfvirkt Björgunarvesti
Guideline Halo EVO 4/6
Loop Trak Tvíhendupakki 13,2′ #8
Loop Z1 Tvíhendupakki 13,2' #8
Loon Bench UV ljós
Dropper Festingar
Loop Opti Speedrunner - Arctic Blue
Stonfo Razor - Hársnyrtitól
Loon Reel Lube - Hjólafeiti
Frödin FITS Túpunál
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #2
Guideline Elevation 9' #8
Loop Opti Strike - Arctic Blue
Patagonia Fly Catcher R. Tan Derhúfa
Tacky Pescador Medium- Clear- Dynamic Foam Flugubox
Stonfo Áhaldasnúra
Vac Rac Stangahaldari með segli
Loop Opti Speedrunner - Twilight Violet
Loon Rouge Skæratöng
Guideline LPX Chrome Tvíhendupakki 12,3' #6/7
Loop Opti Dry Fly - Storm Blue
Fishpond Backwater Fly Tying Kit - Fluguhnýtingataska
Stonfo Hnýtingakambur
Stækkunargler með þvingu
Echo Lift 9' #8 














