LPX Chrome switch-stangirnar eru hannaðar og framleiddar með glænýrri virkni frá Guideline. Þær eru með ¾ djúpri hleðslu og afl sem nýtist snemma í kastinu án þess að draga úr hraða stanganna. Þær eru léttleikandi, búa að miklum stöðugleika og með viðbragðsflýti sem tengir veiðimenn við köstin á alveg nýjan hátt. Þessar 11,7 feta switch-stangir eru í raun stuttar ofurléttar tvíhendur sem hannaðar eru með tvíhenduköst í huga. Þær eru fullkomin verkfæri til að nota í íslenskum ám og gerðar til að takast á við lax og sjóbirting. Stangirnar eru af miklum gæðum og búa að mörgum kostum sem sjaldnast sjást í stöngum á jafn hagstæðu verði.
Leyndarmálið á bak við frábrugðna virkni stanganna er ný tækni frá Guideline sem þeir nefna C.A.P M4.0™. Um er að ræða háþróaða koltrefjauppsetningu sem skapar einstaka sveigju stanganna. Þeim er best lýst sem framsæknum miðlungshröðum (e. Medium Fast) stöngum með hraðri endurheimt (e. Fast Recovery). Toppurinn er afar stöðugur og nær að framkalla þröngan línubug, auk þess sem hann er nægjanlega öflugur til að lyfta þungum sökklínum. Meðan á flugukastinu stendur tengist veiðimaðurinn neðri hluta stangarinnar sem skilar ótrúlegum áhrifum þegar stöngin er stöðvuð í fram- og afturkastinu. Þetta gerir það að verkum að unnt er að ná löngum köstum með afar litlu afli. Hliðarstöðugleiki LPX Chrome gerir það að verkum að flugulínan fylgir stönginni einkar vel þegar henni er sveiflað og snúið í kastinu. Þessir eiginleikar leiða af sér nákvæmari fluguköst, aukinn línuhraða og betri línubug. Þetta er sannarlega ný virkni sem markar ákveðin þáttaskil til framtíðar hjá Guideline.
LPX Chrome switch-stangirnar skarta úrvals handfangi úr fyrsta flokks korki. Til að tryggja langa endingu er það búið sérstökum gúmmí-styrkingum sem munu standa tímans tönn. Guideline mælir með tvennskonar línum saman með þessum stöngum en þær eru 3D+, í venjulegri lengd eða styttri, eða 4D Compact Multi Tip línukerfinu.
Ítarupplýsingar
- Háþróuð A.P M4.0™ koltrefjauppsetning.
- Miðlungshröð með uppbyggingu sem hraðar endurheimt.
- Fjölhæf stöng sem ræður við allar línugerðir.
- Ofurléttar með lágri sveifluþyngd sem gerir þér kleift að veiða lengi án þess að þreytast.
- Blágrá gljáandi áferð með samsvarandi vöf.
- Hágæða korkur með sérstakri styrkingu.
- Rafhúðað hjólasæti með einstöku álagsþoli.
- Léttar og tæringarþolnar lykkjur úr títani með zirconia-innleggi.
- Efri lykkjur eru PVD-húðaðar með mattri grárri áferð.
- Stöngin kemur í stangarsokk og hólk sem unninn er úr endurunnum efnum.
C.A.P M4.0 tæknin
C.A.P M4.0™ koltrefjauppsetningin skapar einstaka sveigju með hraðri endurheimt og mikilli nákvæmni. C.A.P tæknin er með flóknu áslægu mynstri, CAP (e. Complex Axial Pattern) sem parað er við einátta koltrefjauppbyggingu. Með tækninni eru koltrefjalög lögð upp í mismunandi horn hvert á annað til að hámarka styrk og stöðugleika í allar áttir. Í einátta óofnu koltrefjamynstri liggja allar trefjarnar í einni samsíða stefnu, sem tryggir hámarksstyrk stangardúksins. M4.0™ er kvoðan eða plastefnið (e. Resin) sem notað er í þessháttar uppbyggingu. Vegna þeirra eiginleika sem efnið hefur er fyllt betur í eyður stangardúksins en með öðrum hefðbundnum efnum sem leiðir af sér meiri styrk. Það dregur einnig úr magni plastefnisins sem annars þyrfti að nota sem endurspeglast í því hve léttar stangirnar eru.
Veniard Peacock Sword Tails
Plaströr fyrir microtúpur
Fishpond Burrito Vöðlutaska
Opinel Trekking N°7 Green Vasahnífur
Tacky Daypack Flugubox
Guideline Badge Trucker Cap Heat Derhúfa
Guideline Elevation 9,9' #7
Patagonia Stealth Pack S. Green Bakpoki
GL Áhaldaspóla
Loop Trak Switch-pakki 11′ #7
Loon Water Based Thinner - Þynnir
Loon Krókabox / Kónabox
Patagonia Fly Catcher Hat B. Sage Derhúfa
Loon UV Fluorescing Clear Finish - Lakk
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #2
Patagonia Take a Stand T. Blue Derhúfa
Shark Tooth Skurðarteygja M
Acryl-þynnir
Morsetto Flylab Hnýtingaþvinga
Loop 7X 9' #7
Zap-A-Gap Lím með bursta
Loop Stilren Military Green Húfa
Loon UV Vöðluviðgerðarefni
Tacky Original Flugubox 2X
Fishpond San Juan Brjóstpoki
Leech ATW2 - Intro - Copper
Loon Áhaldaspóla
Patagonia Take a Stand N. Navy Derhúfa
Loon Low Tack Swax - Dubbing vax
Veniard Mallard Duck Drake Grey Flank Selected
Loop Opti Speedrunner - Black
GL Losunartöng
Loop Trak 11' #7 

















