Vandaður og vel ígrundaður fluguveiðipakki sem samanstendur af Guideline Elevation tvíhendu, Nova fluguveiðihjóli, undirlínu og Hofsá tvíhendulínu eða annarri sambærilegri línu. Vinsamlegast takið fram í körfuskilaboðum ef óskað er eftir öðru línuvali.
Elevation 14‘ stöngin er hönnuð fyrir stóra laxveiðiár og krefjandi aðstæður. Hún er með meðalhraða sveigju og hleðst jafnt niður skaftið, sem gerir hana kraftmikla og nákvæma í köstum – hvort sem er á stuttu eða löngu færi. Þrátt fyrir öfluga eiginleika heldur hún sveigjanleika og mýkt sem hentar jafnt reyndum sem minna vönum veiðimönnum. Þetta er stöng sem fyrirgefur villur og veitir góða stjórn í öllum köstum.
Með í pakkanum er Nova fluguveiðihjólið frá Guideline – tæknilega þróað og umhverfisvænt hjól smíðað úr endurunnum efnum. Það er laust við einnota plast og með sérsniðnu kolefnisbremsukerfi fyrir hverja stærð. Nova er öflugt og létt hjól með innbyggðu mótvægi, breyttum spóluhnöppum og sterku ytra byrði sem tryggir áreiðanleika og þægilega notkun.
Hjólið er uppsett með undirlínu og Hofsá flotlínu, sem er samfellt hönnuð tvíhendulína þar sem rennilína og skothaus mynda eina heild. Hún er hugsuð fyrir veiðimenn sem vilja jafnvægi, afl og fínlega framsetningu í sömu línu. Hofsá rís hátt, kastar átakalítið og leggst mjúklega á vatnið – fullkomin fyrir aðstæður þar sem nákvæmni skiptir öllu. Hún nýtist bæði með smáum og stærri flugum og hentar jafnt í veltiköst sem yfirhandarköst. Línan er í látlausum grænum lit að framan og skærri appelsínugulum lit að aftan, sem tryggir góða sýnileika án þess að styggja fiskinn.
Guideline Elevation 14′ tvíhendupakkinn er frábært val fyrir þá sem vilja kombó af öflugri stöng, sjálfbæru tæknivæddu hjóli og línu sem skilar afbragðs köstunum.
Vise Keflishalda
Loon Ergo All Purpose 4“ Hnýtingaskæri
Veniard Mallard Duck Drake Grey Flank Selected
Dropper Festingar
Veniard Peacock Sword Tails
Veniard Cock Pheasant Centre Tails Mixed
Reiða Öndin - Snúra
Semperfli Dry Fly Polyyarn Caddis Magnpakkning
Tengi á þvingu - Joint Block
Stonfo Hair Stacker - Hárjafnari
Fishpond Confluence Net Release 2.0 Háfafesting
Loon Top Ride - Þurrfluguduft
360 Dubbing tól
Loop Z1 13,2' #8
Hnútaherðari
Reiða Öndin - Flugupaddi
C&F Magapumpa
McLean Foldable Weight-Net (M115) - Silungaháfur með Innbyggðri Vigt
Loon Amadou Þurrfluguklútur
Stonfo áhald fyrir hálfhnútinn
Guideline Elevation 9' #5 





















