Flottur fluguveiðipakki sem inniheldur Elevation flugustöng, Nova fluguveiðihjól, undirlínu og Bullet+ flotlínu eða aðra sambærilega línu. Vinsamlegast takið fram óskir um annað línuval í skilaboðareitnum í körfu.
Elevation 9′ #6 er meðalhröð stöng í fjölbreyttar aðstæður og hentar vel í vatnaveiði með straumflugum. Hún sameinar næmni og kraft, og nýtist bæði í silungs- og léttari sjóbirtingsveiði þar sem nákvæmni og línustjórnun skipta máli.
Elevation flugustangirnar eru afar léttar meðalhraðar stangir sem gerðar eru fyrir breiðan hóp veiðimanna. Hönnun og framleiðsla stanganna er um margt framúrstefnuleg, en stangarpartar þeirra eru umtalsvert umhverfisvænni en gengur og gerist. Þetta er sú stefna sem Guideline hefur tekið í átt að nútímalegri framleiðsluþáttum. Stangirnar eru framleiddar eins efnislitlar og kostur er án þess að það komi niður á kasteiginleikum eða styrk. Toppurinn er afar næmur en um leið stöðugur og hleðst stöngin með jöfnu átaki niður í skaft. Hraði stangarinnar hentar þeim sem vilja bæði nákvæm köst og góðan línuhraða án þess að fórna stjórn.
Með stönginni fylgir Nova fluguveiðihjól – nýstárlegt hjól frá Guideline sem framleitt er úr endurunnu áli og án einnota plastefna. Nova er hannað með afkastagetu, endingu og vistvænni hugsun að leiðarljósi. Bremsubúnaðurinn er kolefnisstyrktur og sérsniðinn að hverri stærð hjólsins, með stöðugu og öruggu viðnámi í baráttunni. Ný hönnun spólu og ramma eykur styrk, viðheldur léttum þyngdarpunkti og veitir framúrskarandi stöðugleika.
Á hjólinu er Bullet+ flotlína, sem er endurbætt útgáfa af einni vinsælustu einhendulínu Veiðiflugna. Hún er með 9,25 metra stuttum og öflugum haus sem hleðst hratt og skilar löngum og nákvæmum köstum með lágmarks áreynslu. Línan nýtist jafnt í veltiköst sem hefðbundin fluguköst og hentar fyrir allar tegundir flugna – allt frá þurrflugum upp í keilutúpur. Mjúk og þægileg meðhöndlun, góð frammjókkun og áberandi litamunur tryggja stjórn og sýnileika í vatni.
Elevation stangarpakkinn er virkilega athyglisverður og á afar sanngjörnu verði – frábært val fyrir þá sem vilja áreiðanlega blöndu af næmni og krafti í fjölbreytt íslensk veiðisvæði.
GL Losunartöng (Stór)
Loop Opti Creek - Black
GL Áhaldaspóla
Hnýtingafótstykki
Stonfo Taumaklippur
Stonfo Áhaldasnúra
GL Losunartöng
Fishpond Dakota 45" stanga- og hjólataska
C&F Hnýtingagálgi
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #4
Loop Z1 Einhendupakki 9' #5
Loon Payetta Paste - Flotáburður
Stækkunargler með sogskál
Loop Z1 Einhendupakki 7,9' #3
Úr búri náttúrunnar
Stonfo TRR Pedestal Borðfótur
Stonfo línukarfa
Leech ATW Kidz Blue - Sólgleraugu fyrir börn
Fishpond Ridgeline Tech Pack - Bakpoki
Fulling Mill Guide Flugubox - Grey
Veiði, von og væntingar
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #7
Stonfo tökuvarar með lími
Vac Rac Pro Stangahaldari með segli
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9,9' #5
Taumaklippur
Loop Z1 Einhendupakki 10' #7 
















