Guideline Aura Titan 3/4 er hannað fyrir nákvæma og fíngerða silungsveiði þar sem jafnvægi og næmni skipta öllu máli. Þetta er létt hjól, aðeins 133 grömm, sem vinnur fullkomlega með léttum einhendum í línuþyngdum #3–5 og skilar einstaklega náttúrulegri tilfinningu í veiðinni.
Aura-línan frá Guideline er byggð á skýrri nálgun þar sem hvert smáatriði þjónar tilgangi. Hér er ekkert umfram það sem þarf, aðeins nákvæmni, jafnvægi og virkni. Útkoman er hjól sem sameinar léttleika og styrk við einfalt og fágað útlit, þar sem frammistaða og hönnun fara saman.
Hjólið er breiðkjarna með mikið þvermál sem tryggir hraða línuinntöku og góða stjórn á fiski. Spólan er stillt þannig að línan leggst jafnt og snyrtilega án upphleðslu eða „stacking“. Lokaður rammi kemur í veg fyrir að grannar línur eða taumar festist á milli spólu og húss, sem er sérstaklega mikilvægt í nákvæmri veiði með léttum búnaði.
Bremsukerfið er lokað kolefniskerfi sem skilar mjúkri og stöðugri bremsu með lágmarks upphafsmótstöðu. Það verndar granna tauma og gefur veiðimanninum fulla stjórn þegar fiskur tekur. Hjólið snýst mjúklega og bregst hratt við, sem skilar sér í meiri nákvæmni og betri stjórn í veiðinni.
Guideline Aura Titan 3/4 er hjól fyrir veiðimenn sem vilja nákvæmni, léttleika og áreiðanleika í vönduðu og fáguðu formi. Fullkomið í straumvatn og stöðuvötn þar sem hver smáatriði skiptir máli.
Helstu einkenni
• Breiðkjarna (large arbor) hönnun með hraðri línuinntöku
• Lokað kolefnibremsukerfi með mjúkri og stöðugri bremsu
• Lokaður rammi sem kemur í veg fyrir að línur festist
• Létt og vel jafnvægið hjól fyrir nákvæma silungsveiði
• Fáguð og vönduð hönnun með áherslu á jafnvægi og virkni
Loop Evotec G5 9/13
Fishpond Horse Thief Tote Duskwood - Veiðitaska
Loop Dry Travel Wheelbag 150L - Ferðataska
Guideline Fario Click 2/3
Loop Opti Megaloop - Black
Loop 7X 13' #7
Loop Evotec G5 4/6
Loop Classic 10/13
Loop Classic 7/9
Loop ZT 13,2' #8
Guideline NT11 Salmon 13,9' #8/9
Loop Opti Runner - Black
Hatch Finatic 12+ 










