Guideline Aura Bronze 3/4 er hannað fyrir nákvæma og fíngerða silungsveiði þar sem jafnvægi og tilfinning skipta öllu máli. Þetta er létt hjól, aðeins 133 grömm, sem passar fullkomlega við léttar einhendur í línuþyngdum #3–5.
Aura-línan frá Guideline byggir á hugmyndafræði þar sem ekkert er umfram það sem þarf. Hönnunin snýst um jafnvægi, virkni og nákvæmni. Hvert smáatriði hefur tilgang. Útkoman er hjól sem er létt, sterkt og einstaklega vel útfært, með stílhreinu og látlausu útliti.
Hjólið er breiðkjarna með mikið þvermál sem tryggir hraða línuinntöku og betri stjórn á fiski. Þrengri spóla heldur línunni jafnt lagðri og kemur í veg fyrir upphleðslu eða „stacking“. Lokaður rammi kemur í veg fyrir að grannar línur eða taumar festist á milli spólu og húss, sem er sérlega mikilvægt í nákvæmri veiði með léttum búnaði.
Bremsukerfið er lokað kolefniskerfi sem skilar mjúkri og jafnri bremsu með lágmarks upphafsmótstöðu. Það verndar granna tauma og gefur veiðimanninum fulla stjórn í baráttunni. Hjólið er CNC-rennt úr 6061 áli sem tryggir styrk, lága þyngd og góða tæringarvörn.
Guideline Aura Bronze 3/4 er hjól fyrir veiðimenn sem vilja léttleika, nákvæmni og áreiðanleika í einföldu og vönduðu formi. Fullkomið í straumvatn og stöðuvötn þar sem fíngerð nálgun skilar árangri.
Helstu einkenni
• Breiðkjarna (large arbor) hönnun með hraðri línuinntöku
• Lokað kolefnibremsukerfi með mjúkri og jafnri bremsu
• Lokaður rammi sem kemur í veg fyrir að línur festist
• CNC-rennt úr 6061 áli í flugvélagæðum
• Létt og vel jafnvægið hjól fyrir nákvæma silungsveiði
Loop Opti Gyre - Black 













