Thunderhead ECO mittistaskan eru hluti af nýrri endurhannaðri og einstaklega vandaðri vörulínu frá Fishpond. Taskan er að fullu vatnsheld og búin vatnsheldum rennilás með ljúfloku, sem heldur allri bleytu frá innihaldinu. Hér er þessi frábæra vara í nýjum camo-búningi. Taskan er framleidd úr gríðarsterku efni sem endurunnið er úr plasti. Hún er gerð fyrir mikla notkun og þolir því mikið hnjask. Allur frágangur er eins og best verður á kosið.
Þessi mittistaska er hönnuð með þarfir veiðimannsins í huga og rúmar allt það sem þarf við árbakkann, s.s. flugubox, myndavél, áhöld og nestið. Hún er búin góðu bakstuðningsbelti og því leikur einn að veiða daglangt með töskuna á bakinu. Að framan er einn renndur vasi auk ýmissa festinga fyrir veiðitól. Að innan er rennilásavasi auk hólfs undir smádótið. Axlaról fylgir pokanum og má nota eftir þörfum.
Stærð töskunnar er 34 x 23 x 13 cm, hún vegur 0,8 kg og rúmar 10 lítra. Fáanleg í þremur litum.
Guideline Double Side Stillwater Flugubox
Fishpond Tacky Pescador Large Flugubox
360 Dubbing tól
Loon Lochsa - Þurrflugugel
Veniard Grey Tungsten sheet
Tacky Original Flugubox 2X
Guideline Landing Net Leash - Háfasnúra
Fishpond Ripple Hjólataska M 








