Hvort sem þú ert á leið í langa gönguferð eða vilt einfaldlega hafa hlutina meðferðis á veiðum þá rúmar Thunderhead Eco allt sem þarf. Bakpokinn er sá öflugasti sem Fishpond hefur nokkru sinni framleitt, en til marks um það þá mun hann halda innihaldinu þurru jafnvel þótt hanni fari á kaf. Bakpokinn er tilvalinn undir myndavélina, veiðibúnaðinn, nestið og auka fatnað.
Hið nýja NewStream efni er ógnarsterkt og þolir gríðarlegt álag. Rennilásar eru algjörlega vatnsheldir og með fullkominni ljúfloku. Þá er á bakpokanum traust burðarkerfi sem er einkar hentugt í notkun. Hann er auðvelt að bera yfir langan veg enda með góðum stuðningi við bak og mitti. D-lykkjur til að hengja hverskonar áhöld, tæki eða tól eru víða á pokanum. Þá eru festingar á sitthvorri hliðinni undir stangarhólka eða samsettar stangir. Að innanverðu er einn renndur vasi auk plastvasa undir smærri hluti. Bakpokanum fylgir stillanlegt mittisbelti, sem má fjarlægja þegar ekki þarf á að halda. Á axlarböndum eru festingar s.s. fyrir GPS sendi eða talstöð.
Stærð bakpokans er 53 x 30 x 23 cm, hann vegur 1,28 kg og rúmar 28 lítra. Fáanlegur í þremur litum.
Sjálfbærni
Ný vara, gamalt efni
Fishpond er leiðandi fyrirtæki á markaði þegar kemur að sjálfbærri framleiðslu. Fyrir meira en áratug síðan hóf fyrirtækið að nota ónýt fiskinet til framleiðslu á töskum og fylgihlutum. Í dag eru nær allar vörur Fishpond framleiddar úr endurunnum efnum, s.s. netum og plastflöskum. Þannig tekst fyrirtækinu að skapa nýja hluti úr gömlum efnum, umhverfinu til heilla.
Loon Fly Line Cleaner - Línuhreinsiefni
Stonfo Áhaldasnúra
Fishpond Quickshot Stangarfesting
McLean Weigh-Net Medium (M111) - Silungaháfur með Innbyggðri Vog
Taumaklippur
Guideline Mayfly Suede Derhúfa - DK Brown
Loon Deep Soft Weight - Sökkefni
Nám REN 12,6' #7
Fishpond Blizzard Kælitaska
Guideline Landing Net Leash - Háfasnúra
Guideline NT11 Salmon 13,9' #9/10
Fishpond Dakota 45" stanga- og hjólataska 










