Thunderhead ECO mittistaskan eru hluti af nýrri endurhannaðri vörulínu frá Fishpond. Taskan er 100% vatnsheld og búin vatnsheldum rennilás með ljúfloku, sem heldur allri bleytu frá innihaldinu. Hún er framleidd úr gríðarsterku efni sem endurunnið er úr plasti. Taskan gerðar fyrir mikla notkun og þolir því mikið hnjask. Allur frágangur er eins og best verður á kosið.
Mittistaskan er hönnuð með þarfir veiðimannsins í huga og rúmar allt það sem þarf við árbakkann, s.s. flugubox, myndavél, áhöld og nestið. Taskan er búin góðu bakstuðningsbelti og því leikur einn að veiða daglangt með töskuna á bakinu. Að framan er einn renndur vasi auk ýmissa festinga fyrir veiðitól. Að innan er rennilásavasi auk hólfs undir smádótið. Axlaról fylgir pokanum og má nota eftir þörfum.
Stærð töskunnar er 34 x 23 x 13 cm, hún vegur 0,8 kg og rúmar 10 lítra. Fáanleg í þremur litum.
Sjálfbærni
Ný vara, gamalt efni
Fishpond er leiðandi fyrirtæki á markaði þegar kemur að sjálfbærri framleiðslu. Fyrir meira en áratug síðan hóf fyrirtækið að nota ónýt fiskinet til framleiðslu á töskum og fylgihlutum. Í dag eru nær allar vörur Fishpond framleiddar úr endurunnum efnum, s.s. netum og plastflöskum. Þannig tekst fyrirtækinu að skapa nýja hluti úr gömlum efnum, umhverfinu til heilla.