Einstaklega vandaður vatnsheldur bakpoki frá Fishpond í nýjum camo-búningi. Með honum verndaðu allan þinn búnað fyrir verstu veðrum. Hvort sem þú ert á leið í skemmtiferð eða vilt einfaldlega hafa hlutina meðferðis á veiðum þá rúmar Thunderhead Eco allt sem þarf. Bakpokinn er sá öflugasti sem Fishpond hefur nokkru sinni framleitt, en til marks um það þá mun hann halda innihaldinu þurru jafnvel þótt hanni fari á kaf.
Hið nýja NewStream efni er ógnarsterkt og þolir gríðarlegt álag. Rennilásar eru að fullu vatnsheldir og með fullkominni ljúfloku. Þá er á bakpokanum traust burðarkerfi sem er einkar þægilegt í notkun. Hann er auðvelt að bera í langan tíma enda með góðum stuðningi við bak og mitti. D-lykkjur til að hengja hverskonar áhöld, tæki eða tól eru víða á pokanum. Þá eru festingar á sitthvorri hliðinni undir stangarhólka eða samsettar stangir. Að innanverðu er einn renndur vasi auk plastvasa undir smærri hluti. Bakpokanum fylgir stillanlegt mittisbelti, sem má fjarlægja þegar ekki þarf á að halda.
Stærð bakpokans er 53 x 30 x 23 cm, hann vegur 1,28 kg og rúmar 28 lítra. Fáanlegur í þremur litum.
Tacky Pescador Medium- Clear- Dynamic Foam Flugubox
Patagonia Fly Catcher R. Tan Derhúfa
Fishpond Tacky Pescador Leaflet Innlegg XL
Loop Stilren Stone Gray Húfa
Fishpond Nomad Native Silungaháfur
Taumaklippur
Fishpond Swivel Áhaldagormur
Stonfo Taumaspóluhaldari
Bite Mý Lúsmý fæla
Fishpond Nomad Canyon Silungaháfur
Loon Bio Glow - Tökuvari sem lýsir í myrkri
Fishpond Confluence Net Release 2.0 Háfafesting
Fishpond Firehole Bakpoki 








