Dakota 31″ stanga– og hjólataskan frá Fishpond er tiltölulega lítil og nett en einkar rúmgóð. Taskan rúmar fjórar 9,5 feta stangir í fjórum hlutum og 4-6 hjól. Taskan er með breytilegum innri hólfum, á henni eru þrír renndir vasar að utan og þrír að innan.
Stærð töskunnar er: 79 x 23 x 13 cm
Sjálfbærni
Ný vara, gamalt efni
Fishpond er leiðandi fyrirtæki á markaði þegar kemur að sjálfbærri framleiðslu. Fyrir meira en áratug síðan hóf fyrirtækið að nota ónýt fiskinet til framleiðslu á töskum og fylgihlutum. Í dag eru nær allar vörur Fishpond framleiddar úr endurunnum efnum, s.s. netum og plastflöskum. Þannig tekst fyrirtækinu að skapa nýja hluti úr gömlum efnum, umhverfinu til heilla.

Fishpond Green River Veiðitaska 













