Costa Fly Line Veiðigleraugu 580G

Heiti: Fly Line
Umgjörð: Matte Black
Litur linsu: Sunrise Silver Mirror
Efni linsu: Polarized 580G
Stærð: L

37.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Costa Fly Line eru hágæða veiðigleraugu byggð fyrir veiðimenn sem setja áreiðanleika og þægindi í fyrsta sæti. Hönnun Fly Line tekur mið af Reefton, einni vinsælustu umgjörðinni frá Costa, en kemur í nýrri og nútímalegri útfærslu. Gleraugun eru með 8-basa sveigju, sem veitir mikla hliðarlokun gegn birtu og veðri, og passar vel að andliti.

Hydrolite-gúmmí í nefstykki og á spöngum tryggir að gleraugun renni ekki til, jafnvel þótt þau blotni eða notandinn hreyfist mikið. Þar að auki eru sérhönnuð festigöt í spöngum, sem gera kleift að festa hálsól með lykkjuböndum.

Costa veiðigleraugu

Costa Del Mar er einn stærsti sólgleraugnaframleiðandi í heiminum í dag – og ekki að ástæðulausu.
Öll veiðigleraugu sem fyrirtækir framleiðir veita fullkomna vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar. Costa er með einkaleyfi á framleiðslu sinni sem nefnist Costa 580®

99,9%

Polaroid virkni

580® punktar

Einstök skerpa

C-Wall ®

Aukið rispu- og blettaþol

580G/P

Hágæða gler- og plaslinsur

Fullkomin vörn

Polaroid-linsur (e. polarized lenses) eru sérlega mikilvægar fyrir alla þá sem verja tíma sínum utandyra – ekki hvað síst fyrir veiðimenn þar sem sólarljós endurkastast af yfirborði vatns.

Costa linsur eru með 99,9% polaroid virkni       

+ Besta tækni sem fáanleg er í veiðigleraugum
+ Veitir augunum fullkomna vörn fyrir sólargeislum
+ Costa framleiðir aðeins polaroid gleraugu

Hvernig virka Costa 580®?

Linsan síar út sterka gula geisla sólarinnar. Með því móti greina augun betri liti, birtuskil verða eðlilegri og sjónin skarpari.Til einföldunar má segja að Costa gleraugun haldi slæmu birtunni frá augunum og góðri birtu að þeim.

Hvernig gagnast tæknin?

Costa gleraugun sía út glampa af völdum sólarljóss á vatni svo augun greina mun betur það sem er undir yfirborðinu. Þannig getur veiðimaður séð botn árinnar langt um skýrar en ella. Með betri tækni nær Costa þeim árangri að framleiða skörpustu veiðigleraugu í heimi.

En Costa eru þó ekki bara veiðigleraugu því þau nýtast einnig sem sólgleraugu dagsdaglega. Costa gleraugun eru fáanleg með plastlinsum og glerlinsum í mörgum útfærslum.