Coastal Copper eru flott polarized gleraugu frá Guideline með nokkuð breiðri umgjörð. Þau eru hönnuð til nota við ólíkar aðstæður, hvort heldur í veiði eða til daglegra nota. Ramminn er svartur að lit en linsan er koparlituð með rauðleitum tóni og með silfruðum spegli fyrir svalara útlit. Gleraugun henta í sjónveiði þar sem brúnrauði liturinn skapar miklar andstæður í umhverfinu og auðveldar veiðimönnum að koma auga á fisk.
Líkt og önnur gleraugu frá Guideline eru þau með UV400 hlífðarhúð sem lokar algjörlega fyrir skaðlega UVA og UVB geisla sólarinnar. Polarized linsur brjóta niður endurkast af yfirborði og draga verulega úr glampa, sem verður til þess að auðveldara er að sjá fisk í vatni. Það getur komið sér vel í tærum ám þar sem góð yfirsýn skiptir öllu máli. Polarized linsur draga einnig úr augnþreytu og auka sjónnákvæmni.
Coastal gleraugunum koma í endingargóðu hulstri með rennilás og þeim fylgir einnig hreinsiklútur.
Loop Z1 Tvíhendupakki 13' #6
Leech ATW6 Black - Intro - Smoke
Loon Low Tack Swax - Dubbing vax
Stonfo Bobbin Elite 2 - Keflishalda
Loop Z1 11,6' #7
Leech Moonstone - Intro - Yellow
Leech X2 - Performance - Copper Silver
Guideline Elevation 9' #7
Zap-A-Gap Lím með bursta
Morsetto Flylab Hnýtingaþvinga
Fishpond Ridgeline Tech Pack - Bakpoki
Ambush Yellow 3X Veiðigleraugu með styrk 







