CND Nordic 11,9‘ #7/8 er fjögurra hluta switch-stöng, eða lítil tvíhenda, sem vegur aðeins 150 grömm. Þetta er frábær græja til að kasta fyrir lax eða sjóbirting í meðalstórum og stórum ám. Hana má einnig nýta í vatnaveiði þar sem von er á stórum fiskum. Stönginni er ákaflega auðvelt að kasta og skilar kraftmikill toppurinn öflugri hleðslu.
Markmiðið með þróun CND Nordic stangarlínunnar var að gera CND-útgáfu af „Scandi-stöng“. Þó skyldi hún vera með kraftmeiri toppi en gengur og gerist í stöngum af þessu tagi, auk þess sem veiðimaður ætti finna hvað gerist neðar í stönginni. Útkoman er ákaflega áhugaverð – stangir sem skera sig úr fjöldanum. Viðbrögðin frá þeim sem tóku þátt í prófunum hafa verið frábær og þeir veiðimenn sem síðar hafa prófað eru verulega ánægðir með útkomuna.
CND Nordic stangirnar eru úr nýrri gerð kolefnis með Alps hjólasæti, vönduðum korki og koma í Cordura-hólki. Koltrefjarnar voru valdar úr hópi yfir 100 tegunda til að finna nákvæmlega það sem hentar þeirri sveigju og spennu sem Scandi-stöng þarf að hafa. Sérstök micro pitch-tækni gefur stönginni aukna spennu og viðbragð, og vafningarnir eru húðaðir með Hitena-epoxý til að tryggja góða endingu.
Þetta er einstaklega vel heppnuð switch-stöng fyrir lax og sjóbirting sem nýtist ákaflega vel í meðalstórum ám.
Við mælum með eftirfarandi línum á stöngina:
Sandá #8
Hofsá #8
Jöklu sem vegur 400 grain + 12‘ línuenda.
Loop ZT Tvíhendupakki 12,2' #6
Loon Stream Line - Línuhreinsir
Leech ATW6 Red - Intro - Copper
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #5
Tube Fly Tool - Túputól
Morsetto Flylab Hnýtingaþvinga
Loon UV Fluorescing Clear Finish - Lakk
Loop ZX Einhendupakki 10' #8
Guideline LPX Nymph Einhendupakki 10,8' #3
Loon UV Plasma Light
Leech X2 - Performance - Copper Silver
Fine Point Hnýtingaskæri
Kaiman Morsetto Hnýtingaþvinga
Taumaklippur
Loop 7X 10' #5
Patagonia Fitz Roy Trout Trucker Svört Derhúfa
Guideline ULS 2.0 Switch-stöng 10,6' #6 
















