CND Gravity Voyager 13,6′ #8/9 6pc

> Vel heppnuð tvíhenda
> Getur framkvæmt nánast allt
> Mjög auðvelt að kasta
> Heppileg í stærri ár

196.900kr.

Á lager

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Frábær alhliða tvíhenda sem er einstaklega auðvelt að kasta. Stöngin hleðst á skilvirkan hátt án þess að til þess þurfi mikið afl. Hún er í 6-hlutum og því kjörin fyrir veiðimenn sem ferðast til annarra landa í leit að þeim stóra. Tvíhendan er kjörin fyrir meðalstórar og stórar laxveiðiár og er hönnuð með flot- og sökklínur í huga.

Við mælum með að nota:
Nextact Zone 3D Iceland flotlínuna sem vegur 575 grain.
Nextact Zone 2D skothausinn sem vegur 450-500 grain + 12-15‘ enda.

Hönnun CND

Þegar flugustöng er hönnuð skiptir máli hvernig hún mjókkar fram og hve hár stuðull og styrkur stangardúksins er. Þá skiptir fjöldi efnislaga og þykkt koltrefjanna töluverðu máli. Vinsælasta, og á sama tíma ódýrasta aðferðin við framleiðslu á flugustöngum, felur í sér eina stefnubundna lagningu kolefnisins eftir stönginni endurlangri.

Flestar hágæða stangir innihalda hinsvegar annað lag af koltrefjum, sem lagt er í 90 gráður á það fyrra. Sú hönnun gerir það að verkum að afköstin verða umtalsvert meiri. Við framleiðslu á CND Gravity flugustöngunum er aðferðin tekin skrefinu lengra með aðstoð nýrrar tækni sem nefnist Nano-Pitch

CND tilfinning

Með þessari nýju tækni unnt að bæta við fleiri örþunnum koltrefjalögum, sem eru allt niður í 0,5 mm að þykkt (í stað 1,2 mm áður). Hin áhugaverða aðferð veitir notandanum mjög sérstaka upplifun, þar sem stöngin er í senn létt, fínleg og hröð með einstakri „CND-tilfinningu“ niður í korkinn.

Fyrstu koltrefjalög Gravity stanganna eru framleidd með hefðbundinni 90 gráðu tækni. Því næst eru önnur lög skorin með því að láta koltrefjarnar liggja á 45 gráðu horni. Að lokum er svo öðru koltrefjalagi bætt ofan í gagnstæðar 45 gráður. Þessi fjöllaga uppbygging gerir það að verkum að flugustangirnar eru mjög léttar, þær kasta einstaklega beint og ná fljótt að endurheimta jafnvægi eftir flugukastið.

CND fágun

CND Gravity stangirnar eru einstaklega fallegar og gleðja svo sannarlega augað. Þær skarta dökkgrænum lit með silfruðum vafningum og lykkjum úr títani. Svörtu ALPS-hjólasætin eru eins og sniðin að útlitinu og falla þau vel að handföngunum sem framleidd eru úr hágæða korki. CND stangirnar eru afhentar í stangarpoka og í vönduðum álhólki.