Þetta er hin fullkomna alhliða tvíhenda, sem sameinar notagildi og skemmtun. Stöngin er ein sú allra besta í Gravity seríunni, sannkallaður vinnuhestur með mikla sál. Tvíhendan er töluvert hröð, hún hefur einstaka kasthæfni og með henni má ná lygilegum línuhraða. Stöngin ber bæði flotlínur og þungar sökklínur.
Við mælum með að nota:
Laxá #9
Sog skothausinn sem vegur 550 grain + 15‘ elínuenda.
Rangá sem vegur 500 grain + 15‘ línuenda.
Hönnun CND
Þegar flugustöng er hönnuð skiptir máli hvernig hún mjókkar fram og hve hár stuðull og styrkur stangardúksins er. Þá skiptir fjöldi efnislaga og þykkt koltrefjanna töluverðu máli. Vinsælasta, og á sama tíma ódýrasta aðferðin við framleiðslu á flugustöngum, felur í sér eina stefnubundna lagningu kolefnisins eftir stönginni endurlangri.
Flestar hágæða stangir innihalda hinsvegar annað lag af koltrefjum, sem lagt er í 90 gráður á það fyrra. Sú hönnun gerir það að verkum að afköstin verða umtalsvert meiri. Við framleiðslu á CND Gravity flugustöngunum er aðferðin tekin skrefinu lengra með aðstoð nýrrar tækni sem nefnist Nano-Pitch.
CND tilfinning
Með þessari nýju tækni unnt að bæta við fleiri örþunnum koltrefjalögum, sem eru allt niður í 0,5 mm að þykkt (í stað 1,2 mm áður). Hin áhugaverða aðferð veitir notandanum mjög sérstaka upplifun, þar sem stöngin er í senn létt, fínleg og hröð með einstakri „CND-tilfinningu“ niður í korkinn.
Fyrstu koltrefjalög Gravity stanganna eru framleidd með hefðbundinni 90 gráðu tækni. Því næst eru önnur lög skorin með því að láta koltrefjarnar liggja á 45 gráðu horni. Að lokum er svo öðru koltrefjalagi bætt ofan í gagnstæðar 45 gráður. Þessi fjöllaga uppbygging gerir það að verkum að flugustangirnar eru mjög léttar, þær kasta einstaklega beint og ná fljótt að endurheimta jafnvægi eftir flugukastið.
CND fágun
CND Gravity stangirnar eru einstaklega fallegar og gleðja svo sannarlega augað. Þær skarta dökkgrænum lit með silfruðum vafningum og lykkjum úr títani. Svörtu ALPS-hjólasætin eru eins og sniðin að útlitinu og falla þau vel að handföngunum sem framleidd eru úr hágæða korki. CND stangirnar eru afhentar í stangarpoka og í vönduðum álhólki.
CND Gravity 11,6' #7/8
Costa Blackfin Pro Veiðigleraugu 580G
Vac Rac Stangahaldari með segli
BOA M2 XL Vírasett í Vöðluskó
Dropper Festingar
Costa Corbina Pro Veiðigleraugu 580G
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #3
SALAR S4 15' #10/11
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #7
Guideline Experience Vatnsheldur 21L Bakpoki
Fishpond Elkhorn Lumbar Pack Mittistaska - Pebble
Guideline LPX Tactical Einhendupakki 9' #7
Carbite Hnýtingaskæri
Guideline WP Streamer - Flugubox
Guideline Nova Black 7/9
Smartwool Neck Gaiter F. Pine - Hálskragi
Loon Rigging Foam Holder - Taumageymsla
Guideline Carbon Vaðstafur
Guideline GL Mesh Trucker V. Khaki Derhúfa
Fishpond Stormshadow Lumbar Pack - Vatnsheld Mittistaska
Guideline Elevation 13' #8/9 


















