Öflug einhenda með sterkum toppi og skemmtilegri sveigju niður í skaft. Þetta er einhenda sem hönnuð er til veiða á stórum löxum eða sjóbirtingum. Best er að nota stöngina með heilum WF línum eða skothausum (19-22 grömm). Best er að notast við veltiköst.
Hönnun CND
Þegar flugustöng er hönnuð skiptir máli hvernig hún mjókkar fram og hve hár stuðull og styrkur stangardúksins er. Þá skiptir fjöldi efnislaga og þykkt koltrefjanna töluverðu máli. Vinsælasta, og á sama tíma ódýrasta aðferðin við framleiðslu á flugustöngum, felur í sér eina stefnubundna lagningu kolefnisins eftir stönginni endurlangri.
Flestar hágæða stangir innihalda hinsvegar annað lag af koltrefjum, sem lagt er í 90 gráður á það fyrra. Sú hönnun gerir það að verkum að afköstin verða umtalsvert meiri. Við framleiðslu á CND Gravity flugustöngunum er aðferðin tekin skrefinu lengra með aðstoð nýrrar tækni sem nefnist Nano-Pitch.
CND tilfinning
Með þessari nýju tækni unnt að bæta við fleiri örþunnum koltrefjalögum, sem eru allt niður í 0,5 mm að þykkt (í stað 1,2 mm áður). Hin áhugaverða aðferð veitir notandanum mjög sérstaka upplifun, þar sem stöngin er í senn létt, fínleg og hröð með einstakri „CND-tilfinningu“ niður í korkinn.
Fyrstu koltrefjalög Gravity stanganna eru framleidd með hefðbundinni 90 gráðu tækni. Því næst eru önnur lög skorin með því að láta koltrefjarnar liggja á 45 gráðu horni. Að lokum er svo öðru koltrefjalagi bætt ofan í gagnstæðar 45 gráður. Þessi fjöllaga uppbygging gerir það að verkum að flugustangirnar eru mjög léttar, þær kasta einstaklega beint og ná fljótt að endurheimta jafnvægi eftir flugukastið.
CND fágun
CND Gravity stangirnar eru einstaklega fallegar og gleðja svo sannarlega augað. Þær skarta dökkgrænum lit með silfruðum vafningum og lykkjum úr títani. Svörtu ALPS-hjólasætin eru eins og sniðin að útlitinu og falla þau vel að handföngunum sem framleidd eru úr hágæða korki. CND stangirnar eru afhentar í stangarpoka og í vönduðum álhólki.
Fishpond Tacky Pescador Large Flugubox
Guideline LPX Nymph 10,8' #3
Patagonia Take a Stand Trucker Hat Forever Grey Derhúfa
Loon Bio Glow - Tökuvari sem lýsir í myrkri
Guideline Coastal Trucker Derhúfa
Loop Z1 13,2' #8
Losunartöng
Fulling Mill 6-hólfa Box - Orange
Loop Dry 25L Green Bakpoki
Guideline Aura Bronze Euro
Reiða Öndin - Stuðningssarpur
Echo Lift 9' #8
Guideline Forceps - Spring Creek 5" - Losunartöng
Tacky Pescador Medium - Clear- Burnt Orange Flugubox
Fishpond Headwaters Terra Derhúfa
Loop 7X 10' #5
Guideline Elevation 9,9' #6 











