Tvíhendur
Tvíhendur eru hannaðar fyrir veiðar í stærri og meðalstórum ám þar sem lengri köst og góð línustjórnun skipta máli. Þær eru notaðar með báðum höndum og gera veiðimanni kleift að kasta lengra með minni áreynslu. Vinsældir tvíhenda hafa aukist verulega með árunum, enda eru þær bæði einfaldar í notkun og reyna lítið á axlir og hendur.
Tvíhendur henta sérlega vel þegar veitt er með stærri flugum og þyngri línum, ekki síst við veiði á stærri fiski. Í Veiðiflugum má finna allt frá öflugum spey-stöngum yfir í léttar og nútímalegar tvíhendur sem henta veiðimönnum á öllum reynslustigum. Hér getur þú leitað að tvíhendu eftir lengd, línuþyngd, verði og framleiðanda.
Semperfli Dry Fly Polyyarn Caddis Magnpakkning
Zap-a-gap Drip On Lím
Guideline LPX Chrome Tvíhendupakki 12,3' #6/7
Veniard Grey Goose Herl
Loon Tying Mat - Fluguhnýtingamotta
CND Gravity 12,7' #7/8









