LOOP EVOTEC G5 FLUGUVEIÐIHJÓL

Fimmta kynslóðin af þessum frábæru flughjólum sem þekkt eru fyrir stílhreint útlit og einstök gæði.

Endurbætt hönnun og útlit

Evotec G5 fluguveiðihjólin eru framleidd úr renndu áli en aðrir hlutir þess eru m.a. gerðir úr áli og ryðfríu stáli. Útlit þeirra er virkilega fallegt og fært málmgrár liturinn að njóta sín. Á þeim eru nýir endurhannaðir bremsuhnappar sem veita notandanum betri stjórn á bremsubúnaðinum. Þá hefur spóluhnappinum verið breytt þannig að hann auki heildarstyrk rammans og veiti betra grip þegar skipt er um spólur.

Evotec G5 hjólin eru fáanleg í sjö stærðum:

FW HJÓL

Fyrir nettari einhendur

LW HJÓL

Fyrir einhendur og switch-stangir

HD HJÓL

Fyrir tvíhendur

Power Matrix Drag System

Evotec G5 fluguhjólin eru með „Power Matrix Drag System” sem er einn áreiðanlegasti bremsubúnaður sem fyrir finnst í veiðihjólum. Það kerfi hefur Loop notað til margra ára enda fyrir löngu sannað ágæti sitt. Kerfið tryggir jafnt áreynslulaust átak og veitir þannig veiðimanni mikið forskot. Búnaðurinn er algjörlega lokaður og vatnsheldur.

Loop Evotec G5