Á undanförnum misserum höfum við hjá Veiðiflugum lagt aukna áherslu á að þróa flugulínur sem henta íslenskum veiðiaðstæðum. Línurnar eru framleiddar sérstaklega fyrir verslunina og bera allar nöfn íslenskra veiðiáa. Þær hafa getið sér gott orð fyrir áreiðanleika, hagstætt verð og langa endingu.
Nú bætist ný lína í hópinn. Hún nefnist Fitjá og er flotlína fyrir einhendur sem þróuð var með eitt meginmarkmið að leiðarljósi: að gera fluguköstin einfaldari og veiðina ánægjulegri.
Stuttur skothaus sem hleður stöngina hratt
Fitjá er með stuttum, framþungum skothaus sem hjálpar stönginni að hlaðast fljótt. Þessi eiginleiki gerir línuna sérstaklega hentuga fyrir þau sem eru að stíga sín fyrstu skref í fluguveiði.
Reyndari veiðimenn munu einnig kunna að meta hversu auðveldlega línan hleður stöngina og hversu vel hún hentar í veltiköst. Það kemur sér sérstaklega vel þegar pláss fyrir bakkast er takmarkað, til dæmis þar sem grónir bakkar, klettar eða trjágróður standa þétt að veiðimanninum.
Hönnuð fyrir fjölbreyttar aðstæður
Þrátt fyrir stuttan og öflugan haus er Fitjá hönnuð til að leggjast mjúklega á vatnið. Línan skilar markvissum og nákvæmum köstum og hentar því vel þegar fínleg framsetning skiptir máli.
Fitjá nýtist einkar vel í lax- og silungsveiði í straumvatni. Hún réttir auðveldlega úr lengri taumum og ber jafnt nettar flugur sem stærri túpur. Línan hentar einnig vel í stöðuvötnum, þar sem stuttur skothausinn auðveldar veiðimanninum að breyta um kaststefnu og lyfta línunni af vatninu.
Tvílituð hönnun línunnar hjálpar veiðimanninum að sjá hvar skothausinn endar og finna réttan hleðslupunkt. Það einfaldar köstin enn frekar og veitir betri yfirsýn, hvort sem kastað er stutt eða lengra.
Fyrir byrjendur og reyndari veiðimenn
Við vildum þróa línu sem væri aðgengileg fyrir byrjendur án þess að takmarka notagildi hennar fyrir reyndari veiðimenn. Útkoman er öflug og fjölhæf flotlína sem hleður stöngina hratt, kastast með lítilli fyrirhöfn og nýtist við fjölbreyttar veiðiaðstæður.
Fitjá býður upp á einfaldari köst, góða línustjórn og fjölbreytta notkun. Hún gefur reynsluminni veiðimönnum gott tækifæri til að byggja upp öryggi í köstunum en býður jafnframt upp á þá nákvæmni og skilvirkni sem reyndari veiðimenn kunna að meta. Við erum afar ánægð með útkomuna og erum þess fullviss um að línan hljóti góðar viðtökur.
Fitjá er fáanleg í línuþyngdum #5–#8 í netverslun Veiðiflugna og í verslun okkar á Langholtsvegi 111. Þar er einnig hægt að prófa línuna og fá aðstoð við val á réttri línuþyngd og uppsetningu.
Skoðaðu Fitjá flugulínuna í netversluninni með því að smella HÉR.
