Wapsi Indian Rooster Saddle Patch

Wapsi Indian Rooster Saddle Patch eru mjóar og stífar hana-hackles með fallegri mjókkun sem henta vel í smærri straumflugur og stærri þurrflugur.

1.895kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 15.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Indian Rooster Saddle Patch frá Wapsi eru hanafjaðrir sem þekktar eru fyrir mjóa byggingu, stífleika og jafna mjókkun eftir endilöngu. Þessir eiginleikar gera fjaðrirnar sérstaklega hentugar í flugur þar sem jafnt og reglulegt hackle skiptir máli.

Efnið nýtist vel í smærri Nobblera, Woolly Buggers og aðrar sambærilegar straumflugur þar sem þörf er á stífu og endingargóðu hackle. Einnig nýtist efnið í stærri þurrflugur þar sem lengd og form fjaðranna koma að góðum notum.