Veniard Turkey Marabou Strung Bloods

Veniard Turkey Marabou Strung Bloods eru fíngerðar og styttri marabou-fjaðrir sem gefa flugunni mikla og mjúka hreyfingu í vatni. Mikið notað efni í straumflugur.

995kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 15.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Turkey Marabou Strung Bloods frá Veniard eru marabou-fjaðrir úr yngri fuglum sem eru strengdar saman og ekki á stilk, ólíkt Large Selected Marabou. Þetta gerir fjaðrirnar styttri og grennri, sem hentar vel í smærri og miðlungsstórar flugur þar sem nákvæm stjórn á magni og lengd skiptir máli.

Efnið er einstaklega lifandi í vatni og hefur lengi verið eitt mest notaða fjaðraefnið í straumfluguhnýtingum. Strung Bloods eru mikið notaðar í flugur á borð við Nobbler og Woolly Bugger, auk veiðivatnaflugna af ýmsu tagi, þar á meðal Gullið og Kelly Green. Þetta er traust og fjölhæft efni fyrir hnýtara sem vilja hámarks hreyfingu og líf í straumflugum.