Goose Shoulder Soft frá Veniard er fíngert og mjúkt efni sem gefur jafnan og þéttan lit þegar það er notað í búka. Efnið liggur vel við hnýtingu og hentar sérstaklega vel þegar óskað er eftir hreinum litaflötum án ójafna eða óæskilegra áferða.
Auk þess er Goose Shoulder mikið notað sem vængefni í klassískum laxaflugum og votflugum, þar sem smærri vængir og mjúk framsetning skipta máli. Efnið er auðvelt í meðhöndlun og nýtist í fjölmargar klassískar flugur þar sem hefðbundið yfirbragð og vönduð útfærsla eru í forgrunni.
Af flugum, löxum og mönnum
Guideline Elevation Einhendupakki 9‘ #6
Loon Line Speed - Línubón
Taumaklippur
Loon Snake River Mud - Sökkefni
Guideline Salmon Suede Derhúfa - Tan
Loon Áhaldaspóla
Loon UV Vöðluviðgerðarefni
Veniard Hare Mask 
























