Stundum vantar aðeins síðasta punktinn yfir i-ið þegar flugan er hnýtt – og þá kemur Stonfo Trimmer sterkur inn. Þetta litla, beitta verkfæri hefur skáhallað rakvélarblað, sem gerir þér kleift að snyrta burt umframefni eins og dubbing, fjaðrir eða annað smáefni – með hámarks nákvæmni.
Á bakhliðinni er fíngerð nál, sem hentar til að laga dubbing á réttan stað áður en þú skerð – til dæmis á bringusvæði púpu. Þannig geturðu lagað og klárað útlitið áður en síðasta snyrtingin fer fram.
Helstu eiginleikar:
- Beitt, skáhallað blað til fínna snyrtinga
- Hentar öllum flugum: þurrflugum, púpu, straumflugum o.fl.
- Sker öll hnýtingaefni með nákvæmni
- Nál á bakhlið til að laga dubbing eða önnur efni áður en þú skerð
- Þægilegt, ergónómískt handfang
- Framleitt á Ítalíu
Loon Reel Lube - Hjólafeiti
Taumaklippur
GL Losunartöng
GL Áhaldaspóla
Fishpond Tacky Pescador MagPad Flugubox
Dubbing tól með klemmu 

