Smartwool Hike Classic Full Crew Ullarsokkar

Mjúkir og hlýir merínó ullarsokkar með „full cushion“ dempun um allan sokkinn. Þeir eru hannaðir til að veita áreiðanlegan stuðning, mýkt og vörn í fjölbreyttu göngulandslagi. Þétt snið, góð öndun og ending gera þá að frábæru vali fyrir daglega útivist og lengri ferðir.

4.995kr.

  • 30 daga skilaréttur
  • Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr.
  • Fjölmargir greiðslumöguleikar

Hike Classic Full Cushion Crew eru klassískir göngusokkar endurhannaðir með nútímalegri, vistvænni nálgun — úr ZQ-vottaðri merínóull og endurunnu nyloni. Þeir sameina þægindi, hita­stýringu og slitstyrk, sem gerir þá að traustu vali fyrir allt frá stuttum daggöngum til lengri hálendisleiða.

Sokkarnir eru með fulla dempun um allan fótinn, sem gefur aukna hlýju, bætir höggdempun og minnkar þreytu í löppum á löngum degi. Merínó ullin heldur hitastiginu í jafnvægi, dregur raka frá húðinni og bælir lykt náttúrulega, á meðan nylon styrkir byggingu sokksins og eykur endingu. Elastane tryggir að sokkarnir sitji þétt og þægilega. Teygjan veitir stuðning við rist, og flatur táfótssaumur minnkar núning og bætir þægindi í langvarandi notkun.

Helstu eiginleikar

  • Hæð: Crew
  • Dempun: Full Cushion – miðlungsþykkt, dempun um allan sokkinn
  • Secure fit með teygjustuðningi við rist
  • Flatur táfótssaumur fyrir aukin þægindi
  • Þægilegt og endingargott snið fyrir göngur og daglega notkun

Efnisupplýsingar

  • 66% Merínó ull
  • 33% Nylon
  • 1% Elastane