Nano Silk er fluguhnýtingaþráður sem notaður er af atvinnuhnýturum víðsvegar um heim. Þráðurinn er sá sterkasti sem völ er á, hann er fáanlegur í mörgum litum og býður upp á ýmsa möguleika. Afar erfitt er að slíta hann við hnýtingar, enda er þráðurinn um 10x sterkari en stál með sama þvermál. Nano Silk er alveg flatur þráður og því má vefja honum margsinnis áður en bunga fer að myndast á flugunni. Með þræðinum má hnýta fíngerða hausa án þess að endingu flugunnar sé fórnað.
Nano Silk 50D 12/0 er hannaður til hnýtinga á flugum í stærðum #8-#18, hvort heldur lax- eða silungaflugur. Á hverju magnkefli eru 250 metrar.
Loop Opti Creek - Black
Loop Classic 10/13
Stonfo Taumaklippur
Wapsi Ostrich Mini Plumes
Sealskinz Marham - Vatnsheld Derhúfa
Fishpond Tacky Original RiverMag Flugubox
Patagonia Fly Catcher Hat W. Stone Derhúfa
Loon Áhaldaspóla
Loop 7X 9' #8
Loon UV Vöðluviðgerðarefni
Plaströr fyrir microtúpur 


